Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2022, Síða 161
ALDA BJöRK VALDImARSDóTTIR
160
mannsins og lítur svo á Sunna elvira sé meðsek og eigi örlög sín nógu mikið
skilið til þess að leyfilegt sé að hæðast af henni. Líkt og í tilfelli kjósenda
Trumps, myndar hópurinn einingu og samstöðu vegna þess að tilfinning-
arnar taka yfir, í þessu tilfelli sameinast hann mögulega í viðbjóði sínum á
fólki sem brotið hefur samfélagsreglur.
Svipaður viðbjóður braust fram í Kaustursmálinu en þá var honum beint
að gerendunum, þingmönnunum sem brutu á Freyju Haraldsdóttur. Við-
brögðin náðu hugsanlega hápunkti þegar leikarar í Borgarleikhúsinu leik-
lásu samtalið sem var tekið upp á Klausturbar fyrir fullu húsi áhorfenda en
viðburðinum var auk þess streymt.90 Líta mætti á gjörninginn sem sérstaka
tegund af refsingu fyrir siðferðisbrot þar sem hópurinn leitar sinna eigin
leiða til að taka niður þá sem sýna af sér slæma hegðun. Christopher Boehm
ræðir um jafnrétti innan safnara- og veiðimannahópa (e. hunter-gatherers)
í bók sinni Hierarchy in the Forest og þær leiðir sem þeir fara til þess að
halda jafnrétti innan hópsins. mikilvægt er að taka þá niður sem sækja sér of
mikil völd, sýna af sér slæma árásargjarna hegðun eins og í kynferðismálum
eða varðandi misnotkun, arðrán, ofbeldi eða með því að deila ekki. ein-
staklingarnir innan hópsins voru því jafnréttissinnaðir, en ekki friðarsinnar
og notuðu ýmsar leiðir til þess að tryggja það að enginn fengi of mikil völd.
Það sem hjörðin gerir meðal annars er að nota gagnrýni og háð til þess að
taka þá niður sem sýna af sér árásargirni eða andfélagslega hegðun með það
í huga að endurheimta jafnvægið í hópnum.91
Jonathan Haidt segir að viðbjóðstilfinningin eigi uppruna sinn í því að
halda okkur frá öllu sem er skítugt, mengað og eitrað en að siðferðileg brot
veki nú upp með okkur sambærilega kennd.92 Paul Bloom er á svipuðum
slóðum í bók sinni Just Babies. The Origins of Good and Evil en hann segir að
viðbjóður kveiki andstæðar kenndir við samlíðan. Samlíðan geti dregið fram
væntumþykju og óeigingirni en viðbjóður geri það að verkum að okkur sé
sama um þjáningar annarra og geti leitt til grimmdarverka, afmennskunar
og andstyggðar. Sá sem upplifi viðbjóð sjái þá sem tilfinningin beinist að sem
90 Sjá „Samtalið á Klaustri. Leiklestur í Borgarleikhúsinu“, Vísir, 4. desember 2018,
sótt 1. ágúst 2022 af https://www.visir.is/k/31333a5e-50a5-48f1-900d-519ba2a-
6347c-1543934677888/.
91 Sjá Christopher Boehm, Hierarchy in the Forest. The Evolution of Egalitarian Behavior,
London: Harvard University Press, 1999, bls. 43–44.
92 Jonathan Haidt, The Righteous Mind. Why Good People are Divided by Politics and
Religion, loc. 149. Sjá einnig grein Haidt ofl.: „Body, Psyche, and Culture. The
Relationship between Disgust and morality“, Psychology and Developing Societies 9:
1/1997, bls. 108–131, hér bls. 108.