Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 67
1 STUTTU MÁLI
65
matic relief). Raunverulegt
læknisgildi lyfs sé í því fólgið
að græða sjúka vefi og útrýma
sýklunum. Á þessu tvennu hafi
ekki fengizt neinar úrslitasönn-
ur enn. Ennfremur vöktu sér-
fræðingarnir athygli á því, að
berkalsýkillinn virðist hafa tals-
verðan hæfileika til að mynda
með sér ónæmi gegn lyfjum.
Og jafnvel þótt þetta nýja lyf
reyndist fært um að stöðva
berklaígerð, þá geti það ekki
bætt þær skemmdir, sem
sýkillinn hefur þegar valdið í
sjúkum líffærum, svo sem lung-
um o. fl. Skurðlækningar kunni
enn að reynast nauðsynlegar,
svo og sjúkrahússvist, hvíld og
margar aðrar gamalreyndar að-
ferðir. Sérfræðingarnir lögðu á-
herzlu á, að það muni taka lang-
an tíma, ef til vill mörg ár, að
sannprófa lækningargildi þessa
nýja lyfs.
— Scientific American.
Merkilegur eiginleiki plastefna.
Fréttir bárust af því á stríðs-
árunum, að skipreika menn á
hafi úti þyrftu nú ekki lengur
að óttast vatnsskort. I öllum
björgunarbátum á herskipum
bandamanna væri einfaldur út-
búnaður til að breyta sjó í
drykkjarhæft vatn. Ekki þyrfti
annað en hella sjó í lítinn plast-
belg, láta í hann plastmola sér-
stakrar tegundar og breyttist þá
sjórinn eins og fyrir áhrif töfra-
sprota í drykkarhæft vatn.
Þessi uppgötvun byggist á því,
að í öllu vatni (nema alveg
hreinu — eimuðu —- vatni) er
meira eða minna af rafmögnuð-
um frumeindahópum, sem nefn-
ast fareindir (ions). 1 sjó er t.
d. mikið af natríum, klór og
magnesíum fareindum, sem gera
hann óhæfan til drykkjar. Sér-
stök plastefni hafa þann eigin-
leika, að ef þau eru sett í vatn
taka þau til sín þessar fareindir
og láta í staðinn aðrar meinlaus-
ar fareindir; þau hreinsa með
öðrum orðum vatnið. Ein tegund
þessara plastefna tekur til sín
salt, önnur sýrur, þriðja kalk
o. s. frv.
Sú tegundin sem tekur til sín
kalk, er nú orðið mikið notuð til
að ,,mýkja“ vatn. Til þess hafa
áður verið notuð önnur efni, t.
d. sódi, en plastefnið er mik)u
áhrifameira og handhægra í
notkun. Vatnið er látið fara í
gegnum lítinn geymi, sem plast-
duft er í og kemur úr honum
kalkfrítt og mjúkt. Einu sinnx
í mánuði eða svo — þegar plast-
duftið er orðið mettað af calcíum
og natríum f areindum, setur hús-
móðirin nokkur pund af salti í
geyminn og hleypir á raf-
straumi; hreinsast þá plastduft-
ið á örfáum klukkustundum og
er tilbúið til notkunar aftur.
I Los Angeles í Bandaríkjun-
um er geysistór vatnshreinsun-
arstöð, sem notar þessa aðferð
til hreinsunarinnar. Hún „mýk-
ir“ um 800 miljónir lítra af vatni
úr Coloradoánni á dag. Tilraun-