Úrval - 01.06.1952, Síða 70
68
ÚRVAL
Jf. Hve margar atómsprengj-
ur hafa hingaö til veriö
sprengdar?
Ein í Nýju Mexikó 1945, tvær
í Japan 1945, tvær á Bikini
1946, þrjár við Eniwetok 1948,
ein einhversstaðar í Rússlandi
1949, f jórar við Eniwetok 1951,
fimm í Nevada vorið 1951, tvær
einhversstaðar í Rússlandi 1951
og sjö í Nevada haustið 1951.
Alls 27 sprengjur.
5. Hve stór er atómsprengj-
an?
Þær eru nú orðið af ýmsum
stærðum. Þær stærstu, sem eytt
geta heilum borgum, eru taldar
vega um 5 lestir. Þær minnstu,
sem gerðar voru nýlega, munu
vega rúma lest. Úraníumkjam-
inn í sprengjunrti er aftur á
móti ekki stærri en meðalfót-
bolti.
6. Hve öflug getur atóm-
sprengjan orðiö?
Stærstu sprengjurnar sem
búnar hafa verið til jafnast á
við 100.000 lestir af öflugasta
sprengiefni. Talið er að slíkar
sprengjur geti gereytt bygg-
ingum á 30 ferkílómetra svæði.
Hægt er að framleiða stærri
sprengjur, en eyðileggingar-
máttur þeirra mundi ekki vaxa
að sama skapi. Frá hernaðar-
legu sjónarmiði er heppilegra
að búa til tvær litlar sprengj-
ur en eina stóra.
7. Er hætta á að vísinda-
mennirnir fari of langt í til-
raunum sínum og sprengi
kannski jörðina í loft upp?
Nei. Vísindamennirnir tefla
ekki á neina slíka hættu. Þó að
kjarnorkan sé leikmönnum tor-
skilin, hafa vísindamennirnir
aflað sér víðtækrar þekkingar
á henni. Atómsprengingar eru
bæði óhugnanlegt og stórfeng-
legt sjónarspil, en þær eru þó
aðeins barnaleikur hjá þeim
öflum sem náttúran sjálf leys-
ir stundum úr læðingi. Jarð-
skjálftinn í San Fransisco —
svo að dæmi sé nefnt — var
hundrað sinnum öflugri en með-
al kjarnorkusprengja.
8. Ef flugvél með atóm-
sprengju innanborðs hrapaði
yrði þá atómsprenging ?
Nei, sennilega yrði engin
i'aunveruleg atómsprenging.
Aftur á móti gæti eitthvað skeð
í kjarna sprengjunnar þannig
að lítið svæði umhverfis slys-
staðinn yrði geislavirkt.
9. Vita menn nokkurt ráð tit
að finna atómsprengju sem
smyglað hefur verið inn í óvina-
borg ?
Ekki er til neitt tæki til að
leita uppi falda atómsprengju.
Geislamælir kemur ekki að haldi
því að sprengjan sendir ekki frá
sér neina geisla áður en hún
springur. Þegar fremsti atóm-
fræðingur Bandaríkjanna, dr.
Oppenheimer, var spurður
hvaða tæki væri bezt til að
finna með atómsprengju kvaðst
hann mundi kjósa kúbein! Með
því mundi hann síðan brjóta
upp alla kassa í hverjum ein-
asta kjallara borgarinnar!