Úrval - 01.06.1952, Blaðsíða 114
112
TJTRVAL
gusti. Þau opnuðu geymslu-
dyrnar.
,,Hún hefur farið út. Það hef-
ur skeð eitthvað hræðilegt.“
„Hvernig gat hún komizt út?“
spurði Hans kvíðafullur.
„Út um framdyrnar, asninn
þinn.“
Périer gekk að dyrunum.
„Alveg rétt. Sláin hefur verið
dregin frá.“
„Guð minn góður, hvílíkt
brjálæði,“ hrópaði frú Périer.
„Hún drepur sig á þessu.“
„Við verðum að leita að
henni,“ sagði Hans.
„Lækurinn,“ stundi gamla
konan.
Hans stirðnaði upp af hryll-
ingi. Hann starði forviða á
gömlu konuna.
„Ég er hrædd,“ hrópaði hún.
„Ég er hrædd.“
Hans reif upp dyrnar, en í
sama bili kom Annetta í fasið
á honum. Hún var ekki í neinu
nema náttkjólnum og þunnum
silkislopp. Hann var ljósrauður
með ljósbláum blómum. Hún var
gegndrepa og úfið hár hennar
féll gegnblautt niður á herðarn-
ar. Hún var náföl. Frú Périer
hljóp til hennar og tók hana í
faðm sér.
„Hvar hefur þú verið? Ves-
lings barnið mitt, þú ert alveg
gegndrepa. Hvílíkt brjálæði!“
En Annetta hratt henni frá
sér. Hún leit á Hans.
„Þú komst á réttu augna-
bliki.“
„Hvar er barnið ?“ hrópaði frú
Périer.
„Ég varð að gera það strax.
Ég var hrædd um að ég missti
kjarkinn, ef ég gerði það ekki
strax.“
„Annetta! Hvað hefur þú
gert?“
„Ég hef gert það, sem ég varð
að gera. Ég fór með það niður
að læknum og hélt því niðri
í vatninu, þangað til það var
dáið.“
Hans rak upp óp, óp dýrs,
sem hefir verið sært banasári.
Hann huldi andlitið í höndum
sér og reikaði út um dyrnar eins
og drukkinn maður. Annetta hné
niður í stól, laut fram á kreppta
hnefana og grét.
TTJ? Á T Ritstjóri: Gísli Ölafsson, Leifsgötu 16. Af-
AV r jr% jLí greiðsla Tjarnargötu 4, pósthólf 365, Reykjavík.
Kemur út sex sinnum á ári. Verð kr. 10.00 hvert hefti í lausasölu.
Áskriftarverð 52 kr. árgangurinn, sem greiðist fyrirfram. Áskrifend-
ur í Reykjavík geta hringt í síma 1174 og beðið um að greiðslan
verði sótt til sín. Utanáskrift tímaritsins er: tjrval, pósthólf 365,
Reykjavík.
UTGEFANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.