Úrval - 01.12.1956, Blaðsíða 20
Sem þræll lií'ði hann ekki mennsku lífi, en eitt
atvik opnaði honum dyrnar að nýrri til-
veru — tilveru hins siðmenntaða manns.
Að öðiast nýtt líf
Grein úr „American Heritage“,
eftir Dorothy Canfield Fisher.
A ÐALPERSÓNAN í þessari
frásögn, negrinn Booker T.
Washington, byrjaði líf sitt sem
þræll, en varð síðar einn af
kunnustu uppeldisfrömuðum
Bandaríkjanna. Frásögnina hef
ég af vörum hans sjálfs, frá-
sögnina um það hvernig hvít
kona opnaði fyrir honum dyrn-
ar að nýjum lieimi -— heimi sið-
menntaðra manna.
Ég hef aldrei getað gert mér
nákvæma grein fyrir því hve
gamall ég var þegar ég hitti
frú Ruffner. En eftir því sem
ég hef komizt næst, er ég fædd-
ur kringum 1858 sem þræll á
plantekru í Virginia. Fæðing-
arheimili mitt var timburkofi
með skítugu gólfi, fjórum sinn-
um fimm metra að flatarmáli.
Við sváfum á óhreinum fata-
tuskum. Fram á unglingsár átti
ég aldrei nema eina flík —
skyrtu sem ofin var úr grófum
úrgangshör.
Við þrælarnir lifðum á maís-
brauði og svínakjöti, af því að
það gátum við fengið á plant-
eknmni án þess að greiða fyrir
með reiðu fé. Ég þekkti ekki
annað en þrælakofana á plant-
ekrunni þar sem ég var fædd-
ur — nema að ég hafði öðru
hvoru séð álengdar „stóra hús-
ið“ sem hvítu eigendurnir
bjuggu í. Ég minnist þess ekki,
að við settumst nokkurn tíma
saman að máltíð, eins og fjöl-
skyldna er siður — hvorki í
bernsku minni né æsku. Við
átum eins og dýrin, hvenær sem
var og hvar sem við fundum
eitthvað ætilegt.
Eftir þrælastríðið, þegar við
höfðum hlotið frelsi, flutti fjöl-
skylda mín til lítils bæjar í ná-
grenni saltnámu, þar sem ég
fékk vinnu, þó að ég væri enn
aðeins barn. Oft byrjaði vinnu-
dagur minn klukkan fjögur á
morgnana. Hið nýja heimili
okkar var enn verra en hið
fyrra, því að kofinn sem við
bjuggum í var í þéttbýlu fá-
tækrahverfi, óþverrabæli bæði
í bókstaflegum og andlegum
skilningi. Þegar ég eltist og
stækkaði var ég fluttur úr salt-
námunni í kolanámu. Lewis
Ruffner hershöfðingi átti báðar
námumar.
Þegar hér var komið, hafði
ég lært að þekkja stafina og
var orðinn stautandi. Mest af