Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Page 218
HOMIK. BHABHA
[Hún] trufli eða læði sér inn í sjálfa sig í-staðinn-fyrir ... Ef hún
sýnir og býr til ímynd þá er það vegna/jm sjálfgildingar nær-
verunnar ... viðbótin er meðfýlgjandi, þrúgað tilfelli ... Sem
staðgengill er henni ekki einfaldlega bætt við plúsgildi nærver-
unnar, hún færir engan létti ... Einhvers staðar er eitthvað sem
getur verið fyllt upp af sjálfu sér ... aðeins með því að leyfa sér
að vera fyllt af tákni og staðgengli.42 (gjörningur)
Það er í þessu viðbótarrými tvöföldunarinnar - ekki fjölvísun - þar sem
ímyndin er til staðar og staðgengill, þar sem táknið bætir við náttúruna
og tæmir hana, að snúa má hinum sundurgreinandi tíma sem Fanon og
Kristeva fjalla um, í orðræðum menningarlegra eiginda sem eru að koma
í ljós í pólitík mismunarins sem er ekki fjölvísandi (e. non-pluralistic).
Þetta viðbótarrými menningarlegrar merkingar sem víkkar út - og
heldur í um leið - gjörninginn og viðtökuna, skapar frásagnarformgerð
sem er einkennandi fyrir pólitíska hugsun í nútímanum: innlimun ein-
staklinganna á jaðrinum í síendurtekinni hreyfíngu á milli mótsagna laga
og reglna. Upp úr hreyfingu þjóðmenningarinnar sem stendur á skilum -
er víkkuð út og haldið í á sama tíma - birtist orðræða minnihlutans. Inn-
koma hennar er skyld því sem í þingsköpum breska þingsins er kallað við-
bótarspurning. Það er spurning sem er til viðbótar því sem kemur fram á
„dagskrárblaðinu“ sem lagt er fyrir ráðherra. Hún kemur „á eftir“ því
upphaflega eða er „viðbót“ við það og það gefur viðbótarspurningunni
færi á að gefa upphaflegu kröfugerðinni blæ „viðauka“ eða seinkunar. Við-
bótaraðferðin gefur í skyn að það að leggja „saman við“ þurfi ekki endi-
lega að „ganga upp“ heldur gæti hún þvert á móti truflað útreikninginn.
Eins og Gasché hefur sagt á svo gagnorðan hátt sagt þá eru, „viðbætur
plúsar sem bæta upp mínusinn í upphafínu“.43 Viðbótaraðferðin brýtur
upp framvinduna í frásögn sem samsett er úr fleirtölumyndum og marg-
földun, með því að breyta á róttækan hátt tjáningarhætti hennar. I mynd-
hverfingu þjóðarsamfélagsins, „fjöldinn sem einn“, stendur nú sá eini bæði
fyrir tilhneiginguna að gera þjóðfélagið að heild í einsleitum, holum tíma,
og að endurtaka mínusinn í upphafinu, er sá sem er minna-en-einn og
kemur með tímalag ítrekunar og nafnskipta með sér.
sity Press, 1976, bls. 144-5. Tilvitnunin tekin upp úr R. Gasché í The Tain of the
Mirror, Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1986, bls. 208.
42 Derrida, Of GrammMology, bls. 145.
43 Gasché, Tain ofthe Mirror, bls. 211.