Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Page 297
HANN VAR BÆDI MAL- OG HEYRNARLAUS
breyting eða þróun hefur átt sér stað víða um heim og þó auðvitað helst
á Vesturlöndum. Táknmál hafa hlotið viðurkenningu í auknum mæli,
ýmist með lögum eða að minnsta kosti menningarlega, í samfélögum í
kringum okkur. Ef staðan í dag er borin saman við það sem var fyrir 50
árum er ljóst að bylting hefur orðið á stöðu táknmála og þar með mál-
hafa þeirra. Þó táknmálið sé fyrsta mál margra heyrnarlausra þá komast
þeir aldrei hjá því að nota íslenskuna. Islenskan er stóra málið í samfélag-
inu og annað mál4 flestra heyrnarlausra Islendinga og það ritmál sem
heyrnarlausir nota þar sem táknmálið hefur ekki ritmál.
Engin nákvæm tala er til um tungumál heimsins en Dahl telur þau
vera á milli fimm og átta þúsund.5 Talan er m.a. ónákvæm því oft er erfitt
að ákveða hvort tala eigi um tvö ólík mál eða mállýskur. Aðeins lítill hluti
þessara tungumála hefur ritmál6 og því eru táknmálin ekki einstök hvað
það varðar. Einhverra hluta vegna er tiltrú manna á ritmálinu þó meiri
en á talmálinu. Hér á landi hafa rannsóknir á íslensku t.d. lengi gengið út
frá ritmálinu að mestu leyti og það verið viðmið um „hið rétta mál“. Rit-
mál nýtur því jafnan meiri virðingar en talmál gerir7. Táknmálið er oft-
ast sett skör lægra en raddmál og ekki hjálpar til að táknmálið hefur ekki
ritmál.
nota táknmál. Það er hins vegar aðeins lítill hluti heyrnarlausra sent á heyrnarlausa
foreldra og lærir því táknmálið frá fæðingu. Það þykir því ekki að öllu leyti rétt að
tala um móðurmál þar sem táknmálið er ekki lært af foreldrum og á hugtakið „fyrsta
mál“ hér betur við. Hér verður því talað um táknmál sem fyrsta mál heyrnarlausra
en ekki móðurmál.
3 Sjá Aðalnámskrá gninnskóla. Islenska, Reykjavík: Menntamálaráðuneytið, 1999.
4 Það mál sem lærist næst á eftir móðurmáli/fyrsta máli, hér táknmáli.
5 Östen Dahl, „Spoken Languages. Differences and Similarities", Bilingualism in Deaf
Education, ritstj. Kenneth Hyltenstam og Inger Ahlgren, Hamburg: Signum-Verlag,
1994, bls. 161-167, bls. 161.
Sama rit, bls. 162.
7 Sjá t.d. Gauti Kristmannsson, „Málar íslensk málstefiia málið inn í horn?“, Málstefiia
-Language Planning, ritstj. Ari Páll Kristinsson og Gauti Kristmannsson, Reykjavík:
íslensk málnefnd, Rit íslenskrar málnefndar 14, 2004, bls. 43-49, bls. 48; Þóra Björk
Hjartardóttir, „íslenska í breyttu málumhverfi“, Málstefna - Language Planning,
2004, bls. 113-121, bls. 115 og Gauti Kristmannson, „Endurómur úreltra við-
horfa?“, Ritið 1/2006, bls. 211-224, bls. 221.
295