Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2010, Side 303
HANN VAR BÆÐI MAL- OG HEYRNARLAUS
Innan félagssálfræðinnar hafa viðhorf til tungumála verið rannsökuð
til að öðlast betri skilning á samskiptum manna. Fasold23 útskýrir tvo
skóla í þessum fræðum sem nálgast efnið með ólíkum hætti og hafa mis-
munandi skoðanir á eðli viðhorfa. Annars vegar er um að ræða sjónar-
horn þeirra sem aðhyllast hugferlastefnu (e. mentalism) og byggjast flest-
ar rannsóknir á viðhorfum til tungumála á þessu sjónarhorni. Samkvæmt
því stýrir viðhorf persónu því hvernig hún hegðar sér við ákveðnar
aðstæður.24 Þetta sjónarhorn gengur út á það að treysta því sem fólk seg-
ir sjálft um viðhorf sitt eða að unnt sé að álykta um viðhorf þess út frá
hegðunarmynstri. Hér er því treyst á þátttakanda, sem getur orkað tví-
mælis. Romaine25 ræðir í bók sinni um tvítyngi um sjálfsmat þegar tví-
tyngi er annars vegar. Hún segir að erfítt sé að taka sjálfsmat bókstaflega
þar sem svo margir þættir hafi áhrif á matið, m.a. viðhorf persónunnar
sjálfrar til tungumálanna sem hún talar og stöðu tungumálanna í ákveðnu
samhengi. Romaine telur að ef annað tungumálið hafí hærri stöðu (sé
hærra metið) þá sé líklegt að viðkomandi segist tala það mál betur en
hann eða hún raunverulega gerir (og lægra málið þá verr en hann/hún
gerir).
Hins vegar er um að ræða sjónarhorn atferlishyggju (e. behaviorism).
Samkvæmt því eru viðhorfín einfaldlega fólgin í þeim svörum sem fólk
veitir við félagslegar aðstæður. Þetta sjónarmið auðveldar rannsóknir á
sviðinu þar sem ekld er þörf á sjálfsmati fólks eða óbeinum ályktunum.
Það þarf aðeins að fýlgjast með, skrá og greina ódulda hegðun. Hins
vegar eru viðhorf ekki eins áhugaverð hér þar sem ekki er hægt að spá
fyrir um hegðun einstaklinga.26
Finna má ólíkar skilgreiningar á því hvað viðhorf er en flestir virðast
samþykkja þá skilgreiningu að viðhorf sé tilhneiging til að gefa jákvætt
eða neikvætt svar um ákveðinn hlut, manneskju, stofnun eða atburð.2' A
forsendum hugferlastefnunnar, getum við, ef við þekkjum viðhorf ein-
staklings, spáð fyrir um hegðun hans sem tengist þessu viðhorfí með
Ralph Fasold, The Sociolinguistics of Society, Oxford: Blackvvell Publishers, 1987, bls.
147.
Sama rit, bls. 147.
25 Suzanne Romaine, Bilingualism, Oxford: Blackwell Publishing, 1995, bls. 15-16.
-!' Ralph Fasold, The Sociolinguistics of Society, bls. 147-148.
27 Maria Wingstedt, Language Ideologies and Minority Lattguage Policies in Sweden.
Historical and contemporary perspective, Stokkhólmi: Center for Research on Bilingu-
alism, Stockholm University, 1998, bls. 11.