Úrval - 01.03.1963, Síða 14
30
ana á lækningu hættulegra sjúk-
dóma. í DNA-efninu kann til
dæmis a<5 blunda hin leyndar-
dómsfulla orsök og lækning
krabbameinsins.
En hvað er aS segja um sam-
band DNA og sálarinnar? Dr.
Edmund W. Sinnott, frægur lif-
fræðingur og fyrrverandi forseti
American Association for the
Advancement &f Science
(Bandarískt bandalag til efling-
ar visindunum), segir svo um
þetta: „Ef við erum færir um að
ÚR VAL
skapa ný lifsform, sem hafa
ekki þekkzt áður, jafnvel þóft
slíkt sé aðeins i smáum stíl,
gefur slíkt ekki fyrirheit um, aS
viS munum einhvern tíma verSa
raunverulegur þáttur hins mikla
sköpunarafls náttúrunnar? Ég
vil taka undir þessi orð, er
William James mælti eitt sinn:
„Rannsókn lífsins byrjar í rann-
sóknarstofunni, en hún getur
leitt okkur út i mikil ævintýri
og fætt af sér hugsanir, sem eru
ofviða sálum okkar.“
Japanskir togarar á mið í Norður-Atlantshafi.
Ýmis konar takmarkanir og minnkandi fiskimagn á veiðisvæð-
um, sem áður gáfu mikið í aðra hönd, hefur orðið þess valdandi,
að Japanir renna nú vonaraugum til miðanna í Norður-Atlants-
hafi, og er fyrsti togarinn þegar lagður af stað þangað.
Fiskveiðar Japana við Afríku eru ótryggar vegna fyrirætlana
nýju ríkjanna þar um stækkun fiskveiðitakmarkanna í 12 mílur,
og sagt er að lítið sé orðið um fisk á miðunum við Ástralíu og
Nýja Sjáland.
Japanski togarinn, sem er á leiðinni til Norður-Atlantshafsins,
heitir Aoi Maru no. 2, og er frá Aoi-útgerðarfélaginu í Tokyo.
Hann hefur 42 manna áhöfn og mun aðallega stunda veiðar
á þorski, rækju og flatfiski á svæðinu frá Nýfundnalandi til
Englands, en þar eru talin þriðju auðugustu fiskimið heims.
Aflinn verður frystur og fluttur til Bandaríkjanna, Kanada
og Miðameríku-ríkja.
Búizt er við, að togarinn verði hálft annað ár að heiman, og
eru þá meðtaldar ferðir til og frá Japan. Notuð verður bæði
skuttogun og venjuleg hliðartogun.
(Journal of Commeree).