Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 52
50
URVAL
Þarnci stendur hann í miðjum stormsveipnum, rólegur
og ákveðinn eins og klettur úr hafinu. Það er auðséð, að
einhvers staðar í bernsku þessa 69 ára gamla dómara var fædd
sú ákvörðnn að gera jafnan það, sem réttasl reyndist.
John Sirica
„Hámark"
eftir HOWARD MUSON
zmmw
að var fjöldi fólks, sem
fannst John Sirica, dóm
arinn, sem hafði krafizt
að heyra allan sannleik-
ann um Watergatemál-
ið síðastliðinn vetur —
þegar fjölmiðlar og stjórnvöld virt-
ust leggja kröfur á hilluna — vera
einn síðasti heiðarlegi maðurinn,
sem eftir væri í Washington.
Kona nokkur í Staten Island seg-
ir í einu af þeim hundruðum bréfa,
sem hann hefur fengið síðustu mán-
uði, eitthvað á þessa leið:
„Ég er svo stolt af, að við eigum
að minnsta kosti einn mann af yðar
gerð í landinu —• það gerir mér
kleift að trúa enn á framtíð Ame-
ríku. Okkur er lífsnauðsyn að eiga
slíka menn. En hvar eru þeir?“
En þessi 69 ára gamli sonur rak-
ara frá Ítalíu, sem hefur verið hrós-
að af bæði frjálslyndum og íhalds-
sömum, er samt hetja, sem ekki er
við allra hæfi.
Nokkrir frjálslyndir borgarar
hafa kallað hann goð frjálslyndis
af stalli fallið. Þeir benda á upp-
nefni hans: John Sirica hámark,
sem þeir segja að hæfi vel ákefð
hans eftir að dæma eins strangt og
lög leyfa í glæpamálum. Þeir benda
á skilningsleysi hans gagnvart fólki,
sem talið er leiða hann afvega við
ákvörðun og beitingu laga og rétt-
ar.
Öllu öðru fremur er að honum
ráðizt vegna framkomu hans í
Watergatemálinu. Hámarkið 35—40
ár, sem hann ákvað hæfilegt handa
fimm af þeim ákærðu, sem viður-
kenndu sök, hefur verið gagnrýnt