Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 34
32
ÚRVAL
Oft heyrist hann jafnvel öskra af
ánægju, að hálfu leyti eins og villi
maður, og að hálfu leyti eins og
fugl. Hendur hans halda um fasta
stöng. Til þess að beina vængnum
niður á við dregur hann sig örlítið
fram. Til þess að beina vængnum
upp ýtir hann sér aftur. Til þess að
beygja til vinstri sveiflar hann sér
til vinstri. Á hverjum flugvelli, ef
svo má að orði komast, og á hverj-
um flugdegi eru nýjar tilraunir
gerðar. Sem dæmi um útbreiðslu
má taka bifreið sem fer fram hjá
slíkum flugvelli. Hún stanzar, öku-
maðurinn gengur upp á hæðina til
að kanna málið. Hann fylgist svo
með af hrifningu, líkt og hann sé
að horfa á ballet. Síðan hugsar hann
oftast nær með sér: „Ég líka!“ Þrem
ur vikum síðar er hann farinn að
fljúga um á sínum eigin vængjum.
Að læra flugtakið er erfiðasti
þátturinn. Þú hleypur niður í móti
— ekki langt, en hratt -— og með
algerri einbeitni. Ef þú reisir væng
inn aðeins of mikið, verður loftmót
staðan það mikil, að nægur hraði
næst ekki. Þú bægslast þá niður
hæðina og endar með því að detta.
Ef þú hins vegar reisir hann að-
eins of lítið, leitar frambrúnin nið-
ur, vængurinn flýgur beint í jörð-
ina og munnurinn á þér fyllist af
sandi og for. En ef þú heldur segl-
inu alveg réttu, muntu ná fullri
ferð í fáeinum skrefum niður hæð-
ina. Þá reisir þú seglið að framan
og finnur ólarnar grípa um mjaðm-
irnar og lyfta þér upp. Lendingin
er auðveld. Á síðasta augnablikinu
reisirðu vænginn eins og þú getur
og hreyfingin fram á við hættir. Þú
lendir uppréttur eins og fuglarnir.
Flestir fá nokkrar veltur áður en
árangur fæst, en 10—20 tilraunir
eru yfirleitt nóg til að hafa það af
að komast í loftið, örstutt beint
flug og lenda standandi. Eftir það
koma lengri flugin. Þú byrjar ofar
á hæðinni, færð svolítið meira loft
undir þig, tekur kannski rólega S-
beygju. Síðan, ef hæðin þín er nógu
há, fara flugin að lengjast í 30 sek-
úndur eða svo, eða u. þ. b. 35 hjarta
slög. (Af skiljanlegum ástæðum
geta hjartaslögin verið svolítið
fleiri fyrst í stað!).
Ef þú missir ekki stjórnina á 30
sekúndum, missir þú hana heldur
ekki á 30 mínútum. Að síðustu renn
ur svo sá dagur upp. þegar þú flýg
ur frá toppi hæðarinnar og flýgur
jafnvel í heilan hring á leiðinni
niður. Þá geturðu flogið.
Til þess að verða mjög hæfur
þarfnastu venjulega um 150 flug-
ferða á nokkrum mánuðum. Flestir
læra hver af öðrum. eða aðeins af
sjálfum sér. En til eru líka skólar,
sem halda námskeið um helgar.
Fyrir byrjandann er aðalreglan sú
að fljúga ekki upp fyrir mestu hæð,
sem þú myndir vilja detta úr, —
1 metri, 2 metrar í mesta lagi. Með
því að fljúga lágt kemstu alltaf til
jarðar, áður en vafasöm aðstaða
hefur tíma til að skapast. Fyrst
ferðu í byrjandabrekkuna, kannski
5—6 metra upp hæðina. Fyrsta flug
ið þitt gæti orðið aðeins um 20
metra langt og í 25 sentimetra hæð.
En skemmtunin er sú sama og ef
þú flygir 15 km vegalengd í 300
metra hæð. Þú hefur flogið!
Hverjar eru hætturnar? Ofris?