Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 54
52
lagði af stað í sjóferð, sem nokkur
næstu ár fleytti fjölskyldunni um
Suðurlönd.
En hvar sem þau komu í fallega
borg, matsöluhús eða á grænmetis-
markað, sem þeim hafði verið bent
á, varð Fred Sirica, einlægur og
trúgjarn maður, yfirleitt hlunn-
færður og svikinn af félögum sín-
um.
„Hann hafði einn sérstakan skap
gerðarþátt, sem ég gæti ekki
gleymt,“ segir John Sirica nú um
föður sinn. „Hann gat aldrei skil-
ið, hvers vegna fólk laug að hon-
um. En það gerði hann ekki harð-
an — hann lét sér ekki segjast. Ég
vildi óska, að ég væri líkur föður
mínum og hugsaði mér alltaf hvern
mann heiðursmann.
En ég hugsa alltaf um sennileika
málsins í réttinum.
Er vitnisburður vitnis t. d. í senni
legu samhengi við hið augljósa? Er
þessi maður að ýkja?“
Þau áttu heima í Jacksonville í
Florida, en þar klippti Fred Sirica
hár borgaranna, en frú Sirica vann
í lítilli sælgætisbúð, og Johnny var
þjónn.
Síðar áttu þau heima í New Or-
leans og loks í Washington, og þar
innritaðist John Sirica 17 ára gam-
all í lagadeild háskólans, en fann,
„að allt var ofvaxið mínum skiln-
ingi“, og hætti eftir mánuð.
Hann reyndi aftur ári síðar í
Georgetown, og þá heppnaðist allt
betur. Hann náði fyrstu einkunn
við brottför.
Við lok fyrri heimsstyrjaldar
fékk hann starf í nefnd, sem átti
ÚRVAL
að endurskoða skipulag ríkisstjórn-
ar.
En þegar nokkrir nefndarmanna
leituðust við að bæla niður efa-
semdir um, hvort aðilar stjórnar-
ráðsins hefðu nota þvingun til að
flytja stöðvarleyfi útvarpsstöðvar,
gerði Sirica mjög sérstæða athuga-
semd. Hann dró sig í hlé og sagði:
„Það er aðeins ein leið til sönn-
unar máli, hvort sem það er fyrir
alríkisdóm eða fylkisdóm. En það
er að safna öllum staðreyndum og
láta svo teninginn falla.“
„Ég kæri mig ekki um, að ein-
hver segi síðar: „John Sirica er
maður, sem þvær hendur sínar eins
og Pílatus“.“
Eftir styrjöldina gekk hann til
samstarfs við firmað Hogan og
Hartson og varð aðal lögfræðingur
þess. Og það ár, 47 ára gamall,
kvæntist þessi forherti piparsveinn,
John Sirica, 28 ára stúlku Lucy Ca-
malier. Fáum árum síðar var hann
skipaður hæstaréttardómari af Ei-
senhower forseta.
Til dýpri skilnings á hlutverki
Sirica í starfi dómara er rétt að
athuga aðstöðu slíks manns á slík-
um stað.
Hann hefur mikið vald, en það
er oft mjög óákveðið og ekki eftir
föstum reglum, sérstaklega í glæpa
málum eða dómsuppkvaðningu, þar
sem lögin veita frjálsar hendur til
ákvörðunar um, hvort einhver á t.
d. að verðá frjáls eða fara í 20 ára
fangelsi.
Það hefur verið Sirica sérstakt
vandamál, að verkefni hans hefur
verið endurskoðað árum saman, af
áfrýjunarnefnd, sem nýtur alþjóð-