Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 64
ÚRVAL
62
STJ'ORNMÁLALEG ÁHÆTTA
i)'yrir Kínverja yrði það mjög
hagstætt að komast í efnahags- og
stjornmálasamband við EBE. Að
viðskiptasambandinu frátöldu gerir
Pekingstjórnin sér grein fyrir því
hversu voldugt stjórnmálalegt afl
EBE er gagnvart risaveldunum
tveimur, Sovétríkjunum og Banda-
ríkjunum.
Hinni nýju stjórnmálastefnu Kína
og Sovétríkjanna gagnvart EBE
fylgir talsverð stjórnmálaleg áhætta.
Fram að þessu hafa Sovétríkin far
ið öllu hægar í sakirnar en Kín-
verjarnir, vegna þess, að þau ótt-
ast meira stjórnmálalegar afleið-
ingar sambandsins, en hinir síðar-
nefndu. Það tók stjórnvöld Sovét-
ríkjanna 15 ár að viðurkenna það,
sem Leonid Brésnef, aðalritari sov-
ézka kommúnistaflokksins, nefnir
„raunveruleika“ Efnahagsbandalags
Evrópu.
Á undanförnum mánuðum hafa
óbeinar ábendingar komið frá höf-
uðborgum kommúnistaríkja Austur
Evrópu, um að samband milli Co-
mecon bandalags kommúnistaríkj-
anna á efnahagssviðinu, og EBE
væri æskilegt. Þeir aðilar, sem láta
í þetta skína, segja að slíkt sam-
band verði að koma „á réttum
tíma“ og „í réttu formi“.
Frá því að kínverska ríkisstjórn-
in sneri blaðinu við í utanríkismál
um og lét af hinni köldu einangr-
unarstefnu menningarbyltingarinn-
ar, hefur hún verið mjög opinská
í ósk sinni um að taka upp form-
legt samband við EBE. Blaðafregn-
ir frá Kína, sem runnar eru undan
rifjum stjórnarherranna, og sem
birtust eftir 1. janúar sl. þegar EBE
hafði formlega samþykkt aðild
Breta, gengu svo langt, að minnstu
munaði, að Kínverjar óskuðu Bret-
um til hamingju með aðildina. í
umræddum greinum kemur glöggt
fram, að Kínverjar eru ánægðir
með stækkun bandalagsins, og eru
fúsir að gera viðskiptasamning við
það.
KÍNVERJAR FAGNA STÆKKUN
EBE
Dagblað Alþýðunnar í Peking
skrifaði m. a. um stækkun EBE:
„Vestur-Evrópuríkin reyna nú að
styrkja samstöðu sína til að draga
úr yfirráðum risaveldanna tveggja“.
Allt frá þessum tíma, hefur þetta
verið undirtónninn í skoðun Kín-
verja á þessum málefnum. — Kín-
verskir fjölmiðlar hafa greint frá
því, að þetta væri ánægjuleg þró-
un í Vestur-Evrópu, enda hefðu
Sovétríkin og Bandaríkin vaxandi
áhyggjur af stækkun bandalagsins.
Kínverski forsætisráðherrann Chou
En-Lai, skýrði ítalska utanríkisráð
herranum Guiseppe Medici, frá því,
að ríkisstjórnin í Peking væri hæst
ánægð með þróun sameiningarmála
Evrópuríkja. Chou lét ekki þar við
liggja, heldur tjáði ítalska ráðherr-
anum, að vaxandi samskipti EBE-
ríkjanna mættu ekki einungis vera
á sviði efnahagsmála, heldur yrðu
þau einnig að vera á sviði hernað-
ar og stjórnmála. Kínverska stjórn-
in óskar eftir því að sambandið sé
ekki eingöngu sjáanlegt, „heldur
verður það að vera raunverulegt,"
sagði Chou.
í opinberum yfirlýsingum Kín-