Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 29
„HVER SEM ER GETUR BUIÐ TIL DEMANTA'
27
fyrirtækjum, svo sem General El-
ectric í Bandaríkjunum, De Beers
í Svíþjóð og Diamant Borde í
Belgíu.
„Við erum ekki hrædd við sam-
anburð,“ var mér tjáð í stofnun-
inni. „Varningur okkar mælir með
sér sjálfur. Árið 1972 fluttum við
út ellefu sinnum meira magn en
við gerðum fyrir 5 árum.“
HÓ
Bretinn Chay Blyth fór fyrstu för, sem maður hefur farið einn á
báti án viðkomu umhverfis heiminn í vesturátt. Seglbátur hans var
292 daga í förinni. Þegar fréttamenn spurðu, hvort ferðalangur
hefði ekki verið haldinn einmanakennd og leiða, sagði Blvth, 31 árs:
„Þið yrðuð undrandi á því, hvernig maður getur farið að njóta
einverunnar. Það er kannski sjálfselska, en satt að segja var ég
ekki í rauninni einmana eða óhamingjusamur að vera einn út af
fyrir mig.“
Við getum velt því fyrir okkur, hvort margt fólk, sem býr eitt,
gerir sjálft sig ekki óhamingjusamt með því að hugsa sér, að búizt
sé við, að það sé óhamingjusamt.
Kvöld eitt, þegar maðurinn minn var veniu fremur þunglyndur
og þrekaður af heimsins bvrði, skildi ég hann eftir, þar sem hann
h'ustaði á kvöldfréttirnar, og fór í háttinn. Mig langaði að hressa
hann, og ég tók fram kort, sem ég hafði geymt, og festi upp á rúm-
bríkina. Þar stóð: „Vertu kátur. Þetta gæti verið verra. Þú gætir til
dæmis fengið mitt starf. Konan þín.“
Morguninn eftir fann ég eftirfarandi orðsendingu krotaða á kort-
ið með blýanti:
„Nei takk. Ég gæti aldrei þolað manninn þinn.“
Ég kom inn á heimili viðskiptavinar, þar sem fyrir voru vin-
gjarnlegur lítill hundur og Síamsköttur. É'g klappaði hundinum, og
hann urraði. Eigandinn baðst afsökunar og skýrði málið þannig:
Hundurinn hafði komið í húsið sem sex vikna gamall hvolpur.
Kötturinn hafði misst kettlinga sína og fór nú strax að ganga hvolp-
inum í móður stað, og þau urðu óaðskiljanleg. Þá gerðist það, er
hundurinn varð eldri, að hann urraði, þegar fólk strauk honum.
Eigandanum þótti þetta kynlegt, þar til loks varð ljóst, að hundur-
inn var í raun og veru að mala eins og köttur.