Úrval - 01.04.1974, Blaðsíða 61
VARNIR GEGN SNÍKJUDÝRUM OG . . .
59
nýlega var sleppt lausum í heDAi
nautgriparæktarhéruðum Banda-
rikjanna. Þær eru á stærð við mý-
flupu. Þessar einbeittu, litlu skepn-
í”- líta ekki við neinu öðru skor-
kvikindi en alfalfabjöllunni, sem
hafði unnið þar gevsileat tión á
heyframleiðslu og bithögum. Vesp-
urnar vinna saman í hópum á svo
snjallan hátt, að telja má slíkt sem
síeilt dæmi um kosti hópvinnunn-
ar. Þær velja sér mismunandi ald-
ursflokka bjallanna til þess að ráð-
ast á.
Skordýrafræðingar Landbúnaðar-
rannsóknarstofnunarinnar hafa líka
flutt inn og tekið í notkun um 50
tegundir af skordýrum, sem beita
má í styrjöld gegn skaðvænlegum
snikjujurtum, sem hafa blómgazt
hér og margfaldazt þrátt fyrir sí-
felldar árásir á þær með sterkum
jurtaeiturtegundum, sprengiefni og
jafnvel eldvörpum. Þegar krókó-
dílaillgresið tók að breiðast út um
hinar þýðingarmiklu vatnaleiðir
við strendur Suðausturfylkjanna og
stífla þær með þykkum flækju-
breiðum sínum, svo að fiskar köfn-
uðu, bátar komust ekki lengur leið-
ar sinnar og flóð mynduðust, þá
virtist það algerlega vonlaust að
stemma stigu fyrir sníkjujurt þess-
ari. Hún var svo lífseig, að væri
hún hjökkuð sundur í smábúta,
flutu bútarnir út um allt, skutu
rótum og urðu helmingi þykkari
en móðurjurtin.
Líffræðingurinn George Vogt,
sem starfar á vegum Landbúnaðar-
rannsóknarstofnunarinnar, hóf af
þessu mikla leit við læki og ár,
sem renna í ána Rio de la Plata í
Suður-Ameríku, en þar vex jurt
bessi aðeins á stangli, en alls ekki
í bvkkum breiðum. Hann eyddi þar
mörgum mánuðum í að rannsaka
rúmlega 40 tegundir af skordýrum,
bar á meðal örlitla svarta og hvíta
flóabjöllu, sem hámaði í sig blöð
þessarar sníkjujurtar.
Þegar bjöllunni var sleppt lausri
á ofangreindum vatnaleiðum í Suð
austurfylkjum Bandaríkjanna árið
1964, tóku hinar óþreytandi kven-
bjöllur að háma í sig blöð þessarar
sníkjujurtar í fararbroddi afkvæma
skara síns, sem getur orðið 1000 eða
jafnvel enn meiri. Þær gengu svo
hreint til verks, að þær skildu ekki
eftir eitt einasta blað á jurtinni.
Lirfurnar smugu líka inn í hola
leggina og gerðu þannig jurtina enn
veikbyggðari, þar til hún dó að lok
um. Og þannig opnuðust stíflaðar
vatnaleiðir að nýju.
ALGERT STRÍÐ
Þegar ekki er hægt að finna slíka
eðlislæga óvini, verða vísindamenn-
imir að notast við margs konar
aðrar aðferðir til þess að sigrast á
þessum seigu sníkjudýrum og
sníkjujurtum. Sem dæmi um slíkt
mætti taka japönsku bjölluna, sem
er græn og koparlit og hefur sterk-
an gljáa. Hún er ein af verstu
skemmdarvörgum jarðarinnar. Hún
étur ávexti og blóm og allt lauf af
275 mismunandi jurtategundum
(en lirfan étur svo ræturnar). Vís-
indamenn fundu gerla, sem draga
úr þroska lirfunnar. Þessir gerlar
reyndust vera skaðlausir fyrir all-
ar aðrar lífverur. Vísindamönnun-
um tókst síðan með hjálp þessara