Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 71
69
^HugsaS í orSum
Fáir menn komast nokkurn tíma nálægt því að nýta þá
hæfileika, sem með þeim búa. Sérhver maður á auðugar innri
orkulindir, sem aldrei eru nýttar. Richard E. Byrd
Sú kona, sem ég óska mér, ætti að vera 35 ára gömul jómfrú
sem er fögur, skemmtileg, hlý og gáfuð. Þar sem þvílík vera er
ekki til, þykir mér vonlaust að ég eignist konu.
Stewart Granger
Ég hef leikið i þremur kvikmyndum, sem ekki aðeins voru með
sama þræði, heldur var ég í sömu fötunum og sama frakkanum í
þeim öllum þremur. Það eina, sem ég skipti um í öllum þessum
myndum, voru sokkarnir. Og ekki mjög oft, einu sinni.
Robert Mitchum
Það likamlega er það, sem vekur áhuga minn fyrst. Hver sá,
sem segir að fyrstu hughrifin milli karls og konu séu ekki
líkamlegs eðlis, er lygari.
LanaTurner
Að hafa áhyggjur er að sóa deginum í dag og spilla fyrir
tækifærum dagsins á morgun með vandamálum dagsins í gær.
William Arthur Ward
Útborgunardagurinn var- skemmtilegri, þegar maður gat keypt
eitthvað nýtt — ekki bara borgað afborganirnar af því sem maður
skuldar. FrankClark
Næst vanþakklæti erörðugast að umbera þakklæti.
Henry Ward Beecher