Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 111
LEYNDARMÁL LEE HAR VEYOS WALDS
109
á þessa bari, og þar mátti oft og einatt
hlera nytsamlegar upplýsingar um
það sem framundan var. Stout sagði,
að oft hefði mátt veiða það upp úr
einhverri barstúlkunni, hvert förinni
væri heitið næst, fyrr en hægt var að
fá að vitaþað á vellinum. (Samkvæmt
einni heimild hafði njósnaþjónusta
flotans líka áhuga á þeim möguleika,
að selskapsdömurnar í Queen Bee
hefðu verið notaðar til njósna, og að
Oswald hefði fengið fé hjá einhverj-
um á Queen Bee.)
Rétt sem Oswald hélt upp á 18. af-
mælisdaginn sinn, vom gerðar áætl-
anir um að flytja allan hópinn til
Filippseyja. Brottfararstundin nálg-
aðist, og um hálfníu að morgni 27.
október 1957 skrámaði Oswald á sér
vinstri upphandlegginn með kúlu úr
22 kalibera skammbyssu, sem hann
hafíi einhvern veginn eignast 1
Japan. Wilkins þaut inn í búðirnar,
þegar hann heyrði hvellinn, og sá
Oswald sitja hljóðan í efri kojunni,
enn með byssuna í hægri hendi.
Robert Augg, sem átti rúmið er
Oswald sat á, kom litlu seinna, þegar
sjúkraliðsmaður var að binda þvingu-
band á handlegg Oswalds. Augg gat
sér þess til, að Oswald hefði skotið í
sig af ásettu ráði, til að ,,fá flutning”
áður en deild hans hyrfi frá Japan.
Tilkynnt var um atburðinn eins og
reglur gerðu ráð fyrir, og nú átti Os-
wald herrétt yflr höfði sér. En þrátt
fyrir allt var hann sendur til baka úr
sjúkraskýlinu í tæka tíð áður en deild
hans fór til Filippseyja.
Þar og á Corregidor var dvalið í þrjá
efiða mánuði, og ailan þann tíma var
Oswald stöðugt látinn vinna 1 mess-
anum. Svo sneri deildin aftur til
Atsugi, þar sem Oswald var kærður
fyrir að hafa óskráð vopn 1 fómm
sínum. Herréttur sakfelldi hann 11.
apríl, og hann var dæmdur til 20
daga erfiðisvinnu, missa 50 dollara af
launum sínum og stöðumissi (hann
hafði þá rétt nýlokið liðþjálfaprófi),
svo hann var aftur orðinn óbreyttur.
Erfiðisvinnunni var frestað 1 sex mán-
uði og hún var skilorðsbundin. Jafn-
vel þótt yfirmenn hans styddu beiðni
hans um að komast aftur í radarþjón-
ustuna, var honum á óskiljanlegan
hátt haldið í messanum.
Oswald sótti nú um að verða
leystur frá herþjónustu vegna slæmrar
meðferðar. Það leyndi sér ekki að
hann vonaðist til að fá lausn í Japan,
en þessari umsókn var líka hafnað.
Stout segir, að Oswald hafi orðið æ
beiskari og farið að halda því fram
með sívaxandi alvöm, að yfirmenn
flotans hefðu valið hann sér að sér-
stöku fórnarlambi. Þessu fylgdi smá-
atvik á Bluebird Café, fjölsóttum stað
hermannanna í Coffee Mill, þegar
Oswald skvetti úr glasinu sínu á þann
sem hafði skráð hann til messavinn-
unnar, og reyndi að stofna til slags-
mála. Hann var aftur leiddur fyrir
herrétt og fékk nú 28 daga tugthús-
vist.
Tugthúsvist í flotanum var við það
miðuð, að hún væri refsing. Fangar
máttu ekki skiptast á orðum sín í