Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 102
100
ÚRVAL
mjög honum lægi á að komast frá
Sovétríkjunum (með því að segja
ósatt um skeytið). En í þessu tilfelli
höfðu einmitt þessi upplognu atriði
verið staðfest af Fedora,sovéska
njósnaranum í New York, sem einnig
lést vera njósnari fyrir FBI.
CIA tók nú að kanna nánar þá
fullyrðingu Fedora, að flótti
Nósenkós hefði verið svo mikið áfali
fyrir KGB að aliar aðgerðir rússnesku
leyniþjónustunnar hefðu verið
stöðvaðar, meira að segja í New York.
í ljós kom, að starfsemi KGB, sem
Nósenkó vissi um í Sviss, og CIA líka,
var haldið áfram í febrúar og mars.
Það virtist óskiijanlegt, að öll starf-
semi KGB í New York, sem Nósenkó
vissi harla lítið um, hefði verið
stöðvuð, á sama tíma og starfsemi,
sem vitað var að hann vissi um 1 Sviss,
var haldið áfram.
Það leit út fyrir að Fedora,
átrúnaðargoð Hoovers, væri að reyna
að hyssa undir Nósenkó og gera hann
trúlegri. Það jók á vantrú CIA á
Fedora og starfsemi hans. Hvers
vegna myndi Fedora „staðfesta”
falsaðar upplýsingar nema hann væri
„milliliður” KGB til þess að koma
röngum upplýsingum til FBI?
Bæði Angleton og Sovétrússneska
deildin hjá CIA tóku sitt í hvoru lagi
að rannsaka þann möguleika, að
Nósenkó væri I raun og vem sovéskur
flugumaður, sem KGB hafði sent í
dulargerfi pólitísks flóttamanns.
„HARÐVÍTUG YFIRHEYRSLA”
Nósenkó var settur í lygamæli —
og mælirinn sýndi hann segja ósatt.
Frekari yfirheyrslur leiddu í ljós
gloppur í þekkingu hans á KGB.
Þeir, sem yfirheyrðu hann, hölluðust
æ meira að því, að Nósenkó væri
aðeins innantóm skel, sem áróðurs-
meistarar KGB hefðu fyllt af upp-
lýsingum — og villandi upplýsing-
um — sem þeir óskuðu að hann bæri
með sér vestur um haf.
Og ef Nósnekó var ekki sá sem
hann sagðist vera, benti það til þess,
að sovéska stjórnin væri að reyna að
spinna upp sögu til þess að leiða
Warrennefndina á villigötur hvað
snerti Oswald. En á hvern hátt?
Hvorki Angleton né Sovétrúss-
neska deildin töldu, að Oswald hefði
verið að fullnæjga sovéskri skipun,
þegar hann myrti Kennedy forseta.
Líklegra sýndist, að hlutverk
Nósenkós væri að vernda fyrri
sambönd sem Oswald hefði haft við
KGB.
Samkvæmt þessari kenningu hafði
Nósenkó verið sendur til að styrkja
sögusögnina um „óstöðugleika”
Oswalds, og til þess að afneita því
rækilega, að Oswald hefði verið í
þjónustu KGB fyrir eða eftir flótta
hans þangað 1959 cða meðan á dvöl
hans þar stóð. Hann átti líka að
afneita öllu sambandi KGB og
Matínu. Hann hafði verið valinn til
þessa verks af því að KGB hafði þegar
komið honum á framfæri við CIA
1962.
CIA taldi, að undir réttum kring-
umstæðum væru góðar líkur til að