Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 93
LEYNDARMÁL LEE HAR VEY OSWALDS
91
samband við kúbönsku eða sovésku
leyniþjónustuna, skipti engu máli
hve fjarlægt það samband kynni að
vera forsetavíginu, það væri þá
ógerningur að halda því leyndu hve
hrapallega FBI hafði hlaupið á sig, og
stofnunin yrði sökuð um að bera
mikla ábyrgð á morðinu. Þannig
snerust örlögin svo undarlega á þann
veg, að allur áhugi FBI beindist að
því að fela fremur en afhjúpa sér-
hverja vísbendingu um að Sovétmenn
hefðu átt hönd í bagga með Oswald.
Til þess að ná þessu marki, skipaði
Hoover rannsóknadeild FBI að láta
það kvisast til United Press In-
ternational að Oswald hefði framið
morðið einn og án annarra vitundar,
áður en Warrennefndin hefði haft
tækifæri til þess svo mikið sem að
hittast. Hoover greip einnig til þeirra
varúðarráðstafana að flytja alla þá,
sem viðriðnir voru rannsóknina á
Oswald fyrir morðið, í nýjar stöður,
þar sem þeir væru ekki eins reiðulega
til taks, ef einhverjum skyldi detta í
hug að fara að bera fram vondar
spurningar.
Með þetta allt að baki las Hoover
skýrslurnar um yfírheyrslur CIA í
Genf með vaxandi áhuga. Fram-
burður Nósenkós studdi kenningu
FBI um að Oswald hefði ekki verið
viðriðinn neins konar njósnir, og gaf
til kynna þá skoðun að KGB, að hann
hefði ,,ekki verið venjulegur,” sem
féll vel að kenningu Hoovers. Saga
Nósenkós hreinsaði ekki aðeins KGB,
heldur FBI líka. Nú var eins spurn-
ingin: Var hægt að taka sögu
Nósenkós trúanlega?
FJÖRUTlU OG FJÖRAR SPURN-
INGAR
Til þess að komast að því, sneri
FBI sér að sovéskum njósnara, sem
starfaði undir diplómatísku yfirskini
við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna
x New York. Dulnefni hans var
„Fedora.” Fedora hafði sett sig í
samband við starfsmenn FBI í mars
1962 og boðist til að veita stofnunni
upplýsingar um njósnastarfsemi
Sovétmanna, leyndarmál um eld-
flaugabúnað Sovét og kjarnavopna-
áætlun. CIA tókst ekki að afla nægra
upplýsinga um hann til þess að nægði
til fullvissu um að hann væri
„ófalsaður,” en Hoover var svo
hrifinn af þessari nýju upplýsinga-
lind, að hann sendi skýrslur, sem
byggðust á upplýsingum Fedora,
beint til Hvíta hússins. I einni
skýrslunni, sem kallaði Fedora
„óáreiðanlegar heimildir,” strAaði
Hoover persónulega yfir ó-ið framan
við „áreiðanlegar.”
Viðbrögð Sovétmanna við þeirri
tilkynningu að Nósenkó væri x
Bandaríkjunum urðu miklu ofsalegri
en CIA hafði vænst. Og Fedora tók 1
sama streng. Hann sagði FBI, að þeg-
ar Nósenkó flúði, hefði aðalstöðvum
KGB í Msokvu orðið svo mikið um,
að fyrirskipuð hefði verið stöðvun á
allri starfsemi KGB í New York.
Fedora staðfesti líka mikilvægan