Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 3
1
5. hefti
37. ár
Úrval
Maí
1978
Að þessu sinni er bókin óvenju fyrirferðarmikill hluti Úrvals. Hjá því varð
ekki komist, þar sem við teljum útiiokað að teygja eina bók í þrjú hefti, út af
fyrir sig nógu bölvað að skipta henni milli tveggja, þótt við gerum það þegar
um sérlega athyglisverðar bækur er að ræða.
Hjá því verður ekki komist að telja bókina Leyndarmál Lee Harvey
Oswalds allrar athygli verða. Hún er byggð á nákvæmri rannsókn á lífi þessa
fræga manns, sem opinberlega er talinn morðingi John F. Kennedys, þótt það
verði líklega aldrei sannað — eða afsannað — héðan af. Hún er ekki skrifuð
til þess að klekkja á rússum, heldur til að reyna að draga sannleikann fram 1
dagsljósið, og þar fá bæði austur og vestur sinn ómælda skerf. Það hlýtur
lesendum Úrvals að falla vel 1 geð, ef marka má persónuleg viðtöl, svo og það
sem kemurí ljós við fyrsta yfirlit yfirskoðanakönnuninaokkar. Það virðist sem -é,
sem lesendur skiptist í þrjá hópa: Þá, sem telja of mikið um kommúnista-
áróður í Úrvali. Þá, sem telja of mikið um kapltaliskan ameríkanaáróður í
Úrvali. Og í þriðja lagi þá, sem þykir sem grauturinn sé hæfílega blandaður —
en það er einmitt það sem stefnt er að. Þó vill undirritaður ekki taka undir þá
kenningu, að blaðið sé fuilt af áróðri. Það er einmitt reynt eftir föngum að fara
bil beggja, svo sem flestir fái það sem þeim ber, bæði til lofs og lasts.
Leyndarmál Lee Harvey Oswalds ber það með sér, að hún er skýrsia, unnin
upp úr skýrsium og viðtölum. Hvernig kunna lesendur Úrvals við þannig
bókarform? Fróðlegt væri, ef einhverjir nenntu að stinga niður penna og skrifa
okkur bréf þar um.
Ritstjóri.
FORSÍÐUMYNDIN
Forsíðumyndin er af Eyvindarkofa 1 Herðubreiðarlindum. Þar er talið að
Fjalla-Eyvindur hafi dvaiið eftir að hann strauk úr höndum Mývetninga 1772.
Kofinn er hlaðinn úr hraunhelium, um 2 m á lengd og 1 m á breidd. Gegn
um hann rennur lind undir gólfhleðslu. Eins og kofinn er í dag var hann
hlaðinn 1920 með sömu ummerkjum og gamli kofinn, eins og auðið var.
LjósmyndJR