Úrval - 01.05.1978, Blaðsíða 82
80
ÚRVAL
reykingamanna óska að hætta að
reykja. Tveir af hverjum þremur,
sem hættu að reykja, uppgötv-
uðu að það var auðveldara en þeir
höfðu búist við.
★ Milli 1951 og 1971 hætti um
helmingur þeirra lækna að
reykja, sem höfðu gert það fram
til þess. Dánarhlutfall lækna
undir 65 ára aldri lækkaði um
22%. Dánartala þeirra af völdum
lungnakrabba lækkaði um 40%,
úr ólæknandi lungnakvefi um
20%, af hjartasjúkdómum um
23%.
★ Að hætta að reykja eftir
kransæðastiflu minnkar líkurnar
á annarri slíkri stíflu um helming.
★ 1975 lækkaði tala þeirra, sem
dóu yngri en 65 ára af völdum
lungnakrabba í fyrsta sinn i hálfa
öld.
★ Reykingar eru nú bannaðar í
þremur af hverjum fjórum vögn-
um neðanjarðarlestarinnar í
London, og fimm til sex af hverj-
um tíu vögnum bresku járnbraut-
anna. Flugfélögin hafa sérstök
sæti fyrir þá, sem ekki reykja. í
flestum leikhúsum og kvik-
myndahúsum er bannað að
reykja í áhorfendasölunum.
Nýleg könnun í Bretlandi leiddi
í ljós, að 70% fólksins var fylgj-
andi takmörkunum á reykingum
á almenningsstöðum.
★ Sá, sem reykir pakka á dag og
hættir því, sparar 142 þúsund
krónur á ári (miðað við ísland og
verðlag á sigarettum i mai) fyrir
utan eldspýtur og allt annað, sem
tapast við reykingar. *
Meðan Howard Hughes, milljónamæringurinn frægi, lokaði sig
inni í Desert Inn i Las Vegas svo ámm skipti, heimtaði hann sam-
skonar mat hvern einasta dag langtímum saman. Gordon Margulis,
sem lengi var starfsmaður Hughes, hefur sagt frá því, að eitt sinn tók
hann það í sig að vilja fá tvær „skóflur” af banana- og hnetuis með
hverjum málsverð, svo þjónustulið hans varð alltaf að eiga birgðir af
þessum ís.
Eitt sinn, þegar endurnýja átti birgðirnar, kom i ljós, að hætt hafði
verið að framleiðaís með þessu bragði. Nú bráþjónustuliðinu í brún.
En einhver hringdi til isframleiðandans og bað um að framleidd yrði
sérpöntun af banana-hneutisnum. Framleiðandinn féllst á það, en
sagði að minnsta pöntun sem hægt væri að afgreiða, væri 1400 lítrar.
,,Við áttum ennþá nokkrar skóflur af gömlu birgðunum” sagði
Margulis,” og töldum okkur býsna vel birgð ef við fengjum nú eitt
og hálft tonn í viðbót.
En daginn eftir að nýju birgðirnar komu, sagði Hughes, þegar
hann var búinn með ísinn sinn: „Þetta er fyrirmyndar ís, en maður
getur nú orðið leiður áöllu. Heðaní frá vil ég ekkert nema vinilluís.”
Or The Hidden Years.