Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 9
VERKMENN.
9
lega sýnt og sannaS, aS slíkt ástand, og nó væri, gæti ekki lengur
staðizt. — Uppástungan var iögí) fyrir soldán seinast í janóar-
mánuSi, og gaf hann góS svör, en enn er þó á huldu, hvern
veg máliS muni fara, og hvaS stórveldin muni taka til brag&s,
ef uppreistarmenn halda áfram, og gefa þessu engan gaum.
Nágrannafylkin Serbia og Montenegro hafa sína eigin stjórn, og
Bosnía og Herzegovina hafa vist haft faS mark, er ]pau risu upp,
og gripu til vopna, en nú er útséS um þaS, ef Jpau fallast á
þessa uppástungu, og Jpeim væri ekki láandi þótt þau hikuSu sér
viS aS ganga aS þessum kostum, svo þunglega sem Tyrkjum
hefir gengiÖ allt þetta mál hingaS til.
Nú á tímum er mönnum varla eins tíSrætt um neitt, sem
um vanhagi verkmannanna, verkföll þeirra og félags-
skap, enda kveður meira eSa minna að þessu í öllum löndum.
því verBur ekki neitaö, a8 mörgu er ábótavant, því er til verk-
mannanna kemur. Menntun alþýSunnar er mjög lítil í flestum
löndum, og of lítiS af alþýöuskólum, sem þó eru fyrsta
skilyröiS fyrir framförum hennar, og þaS er fyrst á síS-
ustu tímum, aS rnenn eru farnir aS sjá það, og reyna aB bæta
úr skák. MeSan öllum iBnaSi og vísindum fer fram, þyngist
alltaf hagur verkmannanna aS sama skapi. ÁgóSinn dregst í
hendur einstakra manna, sem í raun réttri hafa bæSi töglin og
bagldirnar og iögbjóSa sinn vilja, meSan þorrinn er ómenntaSur
og eptir því fátækur, og er svo aS segja í höndum auSmannanna;
hann stendur og fellur meS þeim, og hefir þó ekki meira en af
skornum skamti, þegar bezt gegnir, en ekkert ef ilia fer.
Einn maSur gefur mörgum þúsundum manna atvinnu, en fari
hann á höfuSiS, svo er allur þessi fjöldi atvinnu- og bjargar-
laus. Sumir nota sér 'fákænsku almúgans, og ginna hann til
aS leggja fé sitt í ýms fyrirtæki, sem hann ekkert þekkir til, og
þegar svo nóg er komiS, veltur opt og einatt allt um koll, og
margar þúsundir manna hafa þannig misst aleigu sina fyrir ekki neitt.
þetta sjá menn eptir á, og finna hvaS verkmönnum er áfátt.