Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 92
92
SPÁNN.
Karlungar voru og örSugir aísóknar fyrir konungsmenn, því aS
þeir gátu dregiS sig í hlé upp i fjöllin, ef þeir áttu viS ofurefli
aS berjast, en komu svo hinum opt og einatt í opna skjöldu
of’an úr einhverju gilinu, þegar minnst varSi. Mikill hluti hers
konungsmanna var og oríinn deigur, og óánægSur meS herþjón-
ustuna, og landsmenn leiSir á þessari ófriSaröld, og vildu hafa
friS. Alfons konungur jók þá herinn, og þá fór hans mönnum
a8 ganga betur. Seint í júní unnn þeir mikinn sigur yfir einum
helzta herforingja Karlunga, Dorregaray, viS mynniS á Ebro-
fljótinu. Dorregaray lét. undan síga af vígvellinum eptir snarpa
orustu og vildi komast undan norSur um fjöllin til Katalóníu, en
konungsmenn stóSu alstaSar fyrir, svo aS hann komst hvergi. í
þessum herkvium sat hann, þangaStil í miíjum júlímánuSi. þá
gerSi hann árás á konungsmenn, og komst viS illan leik burtu,
en missti viS þaS margt manna, og særSist sjálfur stórum sárum.
Konungsherinn fylgdi á eptir, og skömmu seinna unnu þeir sigur
á einum af foringjum Kariunga, sem Saballs hét, og tvístruSu her
hans algjörlega. Fóru þeir þá um landiS herskildi, brenndu allt og
brældu, og hjuggu menn og fénaS niSur sem hráviSi. þegar
þessi saga kemur til eyrna Karli sjálfum, ritar hann frænda sín-
um, Alfons konungi, bréf, og biSur hann aS fara vel meS sigur-
vinningum sinum, og láta af slíkum grimmdarverkum. „Eg er
ekki kominn“, segir hann í bréfinu, „til aS vera konungur yfir
einum flokki, heldur yfir öllum Spánverjum, og leyfi því áhang-
öndum þínum aS lifa frjálsum og ómeiddura í mínum héruSum.
Eg, sem er konungur og höfuS ættar okkar, segi, aS þú vansæmir
nafn þitt og ættjörb, ef þú fremur slík grimmdarverk". Ekki er
getið um, aS Alfons konungur eSa menn hans hafi látiS sér
mikiS segjast viS þetta bréf, enda hefir þaS veriS einkenni signr-
vegaranna á Spáni, alla þessa styrjöld út, aS fremja sem mest
hryðjuverk og leika hina sigruSu sem verst og grimmlegast.
Megin konungsbersins var um þessar mundir í Katalóníu; yfir-
foringi þar vai Martinez Campos, hreystimaSur mikill. Hann
settist í júlímánuSi snemma um borg þá norSantil í Katalóníu, er
Seo de Urgel heitir. þar er vígi ágætt, er hann vildi ná, og
Karlungar béldu, en þaS vildi ekki ganga greitt. Hann vann