Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 169
EGIPTALAND.
169
baust var þar sá maSur kosinn til forseta, er Gareia Moreno
hét, vísindamaíiur mikill og hinn mesti dugandismaSur. Hann
var tengdasonur Flores þess, er fyrrum gerSi Ecuador aS frjálsu
ríki (1830), og hefir áSur staSiS fyrir lý&veldinu um fimm ár
(1861—66). þegar hann nú kom til valda, vék hann verstu
óróaseggjunum úr embættum og vildi koma betra lagi á stjórnina.
Einn af þessum mönnum, Rayo aS nafni, réSist þá óSara inn í
höll hans aS öllum óvörum og skaut hann til bana. Rayo var
raunar drepinn áSur en hann komst burt, en hér höfSu fleiri
samsærismenn átt hlut a8 máli, og komu á skammri stundu öllu
landinu í uppnám. HermálaráSgjafi Morenos, Salazar, tók þá
viS stjórninni, en gat þó ekki sefaS óspektirnar fyr en hann
fékk styrk til þess hjá nágrannaþjóSunum.
Suðurálfa.
£g'lptaland. þar er allt á fleygiferS, er til fram-
kvæmdanna kemur. Ismail jarl er ótrauSur og lætur mikiS til
sín taka í öllum stjórnarstörfum. Hann sníSur sér í öllu stakk
eptir NorSurálfumönnum, enda hefir ríki hans tekiS þeim breyt-
ingum, síSan hann kom til ríkis, aS undrum sætir. ISnaSi, verzlun
og jarSyrkju fleygir þar áfram árlega, og mörg héruS, sem áSur
voru auSn ein, eru nú orSin eins frjóvsöm og beztu sveitirnar
voru áSur. Réttarfar Egipta hefir áSur veriS fremur lélegt, því
aS þaS hefir veriS byggt á kóraninum, einsog siSur er allra Mú-
hameSstrúarmanna, en 1 fyrra fékk jarl sér lögspekinga úr
NorSurálfu og lét þá semja nýjar lögbækur; þær komust allar í
gildi í fyrra haust (16. septbr.). Um sama leytiS stofnaSi hann
nýjan yfirdóm í Alexandríu og fékk sér í hann lögvitriuga úr
flestum ríkjum NorSurálfunnar. Mest tíSindi þóttu þó þaS, er
hann innleiddi tímatal kristinna manna hjá sér snemma í fyrra,
því aS meS því gat engum dulizt, aS hann virti aS vettugi Mú-
bameSstrúna og allar hégiljur hennar, enda varS mikiS uppnám
útúr því í fyrstu, bæSi af þegnum hans og einkum austur í Mikla-