Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 117
UPPREIST í HEKZEGÓVÍNU OG BOSNÍU.
117
ekkert á sér bært, en Tyrkir voru þó smeykir, er sigurvinningarnar
fréttust frá Herzegóvínu, og vildu sjá svo um, aS þeim yrbi ekki
þaSan bætta búin. 3. ág. byrjuSu þeir og tóku höndum 30 af
helztu mönnum Bosna, sem þeir ætluSu, að helzt gæti haft for-
ustuna á hendi, og héldu svo áfram hertökunni fram um miSjan
mánuS; þá tóku einstöku sveitir, sem verst höfSu veriS útleiknar,
aS kurra og gera sig líklega til óspekta, en þá tók ekki hetra
viS. ASfaranóttina hins 18. ág. skipuSu Tyrkir sér um sveitirnar,
tóku hús á mönnum sofandi, og drápu allt sem fyrir varS, konur
sem karla, og u.rSu þaS mörg hundruS manns. þetta var í
héraSinu meSfram ánni Sanna, sem rennur í Sau. ViS þetta
byrjaSi uppreistin fyrir alvöru, en þó voru Tyrkir þar svo fjöl-
mennir fyrir, aS uppreistarmenn urSu margir aS flýja, sumir til
Austurríkis, en sumir til Herzegóvínu. En þá komu tvær her-
sveitir frá Dalmatíu til liSs viS Bosna, og varS þeim þaS góSur
styrkur. Fyrir annari var sá maSur, er Stratinirovic hét, og
voru í henni 10 þúsundir manna, en í hinni voru 5 þúsundir, og
hétu foringjar þar 'Vlajcoric og Zarko. Slafneskir menn þustu
og til Bosníu hvaSanæfa til aS taka þátt í uppreistinni, og svo
kom bráSum, aS uppreistin varS þar engu hættuminni fyrir Tyrki,
en í Herzegóvínu, enda þótt þar væri ennþá aSalhersviSiS. Land-
stjórinn í Bosníu hét Derwish Pascha, all-duglegur maSur, en
hann fékk þó litlu viS ráSiS. Um þetta leyti voru erindrekar
stórveldanna aS reyna til aS miSia málum í MiklagarSi, einsog
getiS er um hér aS framan (hls. 6—7.), og fóru síSan til Mostar,
en tilraun þeirra varS til ónýtis, og hefir því litla þýSingu fyrir
ófriSinn.
þegar hér var komiS sögunni fór Tyrkjum aS ganga betur.
þeir höfSu aukiS herinn, þótt örSugt væri um fjárbaginn, en
uppreistarmenn gátu hinsvegar litlu viSbætt, og áttu erfitt meS
allar vistir og útbúnaS, og alla, sem sárir urSu, varS aS flytja
til annara fylkja, því aS sjálfir höfSu þeir hvorki lækna né sjúkra-
hús. Stacic, sem vér fyr gátum, hafSi setiS um Trebinje allan
þenna tíma, og átti skammt eptir aS vinna borgina, en þá
kom Ali Pascha, aSalherforingji Tyrkja, meS fjölda manns, og
áttu þeir harSa orustu, áSur en Staic varS aS flýja (31- ág.).