Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 106
106
ÍTALÍA.
heita: Coppino, Mancini, Nicotera, Zanardelli, Calatabiano og
Messacapo, og hafa sumir þeirra'veriS ráSgjafar á8ur. Depretis
var áSur meS Garibaldi, þegar hann fór förina til Sikileyjar
(1860), og varS þar landstjóri um tíma. Seinna kom raunar
ósætt meS þeim, er Depretis vildi draga eyna undir Viktor
Emanúel, en Garibaldi vildi hafa lýSstjórn, og varS hann þá aS
sleppa embættinu; síSar sættust þeir þó fullum sáttum og fylgdust
mjög aS málum eptir þaS. Mælt er, aS ráSaneyti þetta muni i
flestum efnum fylgja fyrirrennurum sínum í stjórninni, aS minnsta
kosti lýstu þeir yfir því, er þeir tóku viS, aS fjárhagur ríkisins
þyldi ekki, aS neinum sköttum væri létt á fyrst um sinn, og brá
þá mörgum þingmanni meira en lítiS í brún viS þá yfirlýsingu.
Af páfanum fara litlar sögur nú orSiS; hann hefir
misst algjörlega vald sitt í veraldlegum efnum, og þó andlegt
vald hans hafi vaxiS aS lögum meS óskeikunarkenningunni,
er klerkavaldiS meS ári hverju brotiS meira og meira á
bak aptur. Hann situr í höll sinni og sýtir horfinn veg, en
„svo er lengi sinniS sem skinni8“, og ekki brestur ennþá
hótanir og bannfæringar, þegar honum ræSur svo vib aS horfa,
en því er bæSi stjórn ítala orSih svo vön, aS hún kippir sér
ekki upp viS þaB, og margir meSal klerka sjálfra skeyta því lítt
eSur ekki; þó er ekki svo aS skilja sem páfinn hafi ekki þorrann
af klerkalýSnum meS sér enn, er fylgir boSum hans í öllu, og
dyggilega berst á móti öllum nýjum breytingum meS honuni.
þaS veitir heldur ekki af, því aS stjórnin er hörS í horn aS
taka, og baráltan skæS milli hennar og klerka. í fyrra var settur
erkibyskup einn í Palermo, sem hét Celesio; hann var óvinur
stjórnarinnar hinn mesti og vildi því ekki fyrir neinn mun fá
samþykki hennar á embætti sínu, einsog til er tekiS í lögunum,
og kvaSst engum skyldur aS hlýSa, nema hinum heilaga föSur í
Rómi. Stjórnin hafSi og leyft klerkum hjónaband, og höfSu
margir þeirra ekki látife segja sér þaS tvisvar og tekiS sér konur,
en þegar Celesio kom til' embættisins, setti hann óSara alla
klerka af, sem brotiS höfSu reglurnar, og bannsöng þá um leiS.
þá tók stjórnin í taumana, og rak erkibyskupinn burt, hva& sem
hann og páfi sögbu, og þetta atriSi varS síSar til þess, aS
< '