Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 97
HVERFLYNDI SPÁNVERJA. SAMSÆRI.
97
eptir. Yngsti bróSirinn var Juan Carlos, er lifði í Lundúnum og
fyrrum bað ísabellu drottningar. Hann fól syni sínum, Karli þess-
um (f. 1848), að halda fram kröfum ættarinnar, og væri synd
að segja, að hann hafi ekki reynt það. Hann hefir nú haldið
uppi ófriðarskildinum, þó iélegur væri, í samfleytt fjögur ár (1872-
1876), og þykist ennþá ekki, þótt ófriburinn færi svona, vera af
baki dottinn með að brjótast til ríkis á Spáni.
Fá ríki hafa á síðustu árum haft af öðrum eins byltingum
og stjórnleysi að segja og Spánn, enda hafa Spánverjar heldur
ekki sína líka meðal siðaðra þjóða að ofsa og hverflyndi; menntun
þeirra er drepið niður af ofmiklu klerkavaldi, sem elur hjátrú og
hégiljur hjá þjóðinni, og hefir hana því boðna og búna til alls-
konar hryðjuverka, sem trúarofsamenn klerka vilja fremja láta.
J>að er því ekki við miklu að búast af slíkri þjóð, sem ekki hefir
vit á að stjórna sér sjálf, og sitt vill hverja stundina. Stundum eru
Spánverjar æfustu þjóðvaldsmenn, og vilja ekki heyra nefnda aðra
stjórnarskipun en þjóðstjórn, en áður en hún er á fastan fót komin,
hafa þeir breytt skoðun sinni og biðja óvægir um konung. 1868 ráku
þeir ísabellu úr landi, og það að maklegleikum, en þá tók við
stjórnleysi, þangaðtil Amadeo aumkaðist yfir þá og tók við konung-
dómi. Eptir tvö ár varð hann að flýja land fyrir ofstæki höfð-
ingjanna og banatilræðum klerka, og varð þeirri stundu fegnastur
ab sleppa þaðan óskemmdur. þá varð Spánn iýðveldi að nafninu
til, en þeir, sem fyrir því áttu að standa, gátu litlu tauti komið
á fyrir ribbungaskap þjóðarinnar, svo að allt gekk á tréfótum.
Castelar var raunar á góðum vegi að koma lagi á, meðan hann
var forseti, en þegar bezt stóð, var honum steypt úr völdum, og
allt komst í sama ólagið aptur. Loks urðu Spánverjar leiðir á
þjóðstjórnaramstrinu, og kvöddu Alfons, son Isabellu, til konungs.
Hann tók við stjórn í janúar í fyrra, og síðan hafa Spánverjar
orðið spakari, hvað lengi sem það verður, og una nú allvel stjórn
hans. í fyrstunni voru þeir þó margir, er óánægðir voru með
komu hans, einkum sumir af herforingjunum, og gripu því til
þess ráðs, sem algengt er á Spáni, aÖ mynda samsæri og ráða
konung af dögum. Samsærinu var komið á í Madrid, og fjöldi
Skirnir 1876.
7