Skírnir - 01.01.1876, Blaðsíða 120
120
TYRKLAND.
sína allan veturinn í NorSur-Herzegóvínu, og gert þar mikinn
usla. Snemma í marzmánuSi ætlaSi hann til kastala eins, sem
Livno heitir, og ná honum af Tyrkjum; á leifeinni tóku hann og
menn hans sér dögurh í þorpi einu tyrknesku, er Yiijani heitir,
og liggur vi8 landamæri Dálmatiu. þá kom þangaS herdeild af
Austurríkismönnum, og kvaS þá vera komna yfir landamærin, og
yrSi þeir því aS taka hann höndum. þaS kom fyrir ekki, þótt hann
sýndi þeim og sannaSi, aS bærinn væri eign Tyrkja; Ljubobratic sjálfur
og sex af undirforingjum hans urSu aS selja vopn sín af hendi, og
vorn þeir siSan fluttir burt af Austurríkismönnum. Skjaldmærin
Markús var og vopnum flett, og tekin höndum. LiSsmenn Ljubo-
bratics aSrir voru látnir óáreittir, og varS þar nú sá foringi
yfir, er Alexander Yaksic heitir. þaS er kornungur maSur, en
Ijónhraustnr og hiS bezta foringjaefni. Handtaka Ljubobratics
mæltist mjög illa fyrir, og þegar herdeildin flutti hann norSur
um Dalmatiu, linnti ekki gleSiópum fyrir honum, og viS sjálft
lá, aS landshúar myndi ráSast á Austurríkismenn til aS frelsa
hann. Ljubobratic situr enn í varShaldi í Austurríki, og enginn
af þeim, sem teknir voru þá, hafa fengiS frelsi sitt aptur, nema
jómfrú Markús; þaS þótti minnkun aS halda henni, og fór hún
þá óSara til Herzegóvínu aptur. Ekki bætti þetta atriSi fyrir
samningunum í Suttorina, enda voru ágreiningsatriSin nóg áSur.
Uppreistarmenn settu þaS aS aSalskilmála, aS stórveldin vildi
áhyrgjast, aS réttarbætur þær, sem Andrassý-skráin færi fram á,
fengi framgang, en þaS gat Eodich ekki ábyrgzt þeim. Rodich vildi
þó fyrir hvern mun koma á vopnahlé, og tóku uppreistarmenn
því allvel, enn þegar sem hæst stóS á samningunum, fréttist, aS
Tyrkir væri á leiSinni meS óvígan her, og ætluSu til kastala
eins í SuSur-Herzegóvínu, sem Niksic heitir og hjálpa þar sín-
um mönnum úr umsát. Hér var því ekki um vopnahlé aS tala
lengur, og foringjarnir hröSuSu sér til herflokka sinna, og héldu
síSan mót Tyrkjum; lauk þeim viSskiptum svo, ab Tyrkir urSu
aS hörfa aptur og komust ekki yfir fjöllin. Uppreistarmönnunum
í Bosníu fór nú og aS ganga betur, og Serbar bjuggu sig í ákafa,
hvaS sem stórveldin sögSu. Mælt er, aS erindreki Rússa í Suttorina,
Wesselizky, ekki hafi hvatt uppreistarmenn til aS ganga ab þeim kost-