Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Side 1
Þorvaldur Thoroddsen.
i.
Pá er Ársritið var að hlaupa af stokkunum í fyrra,
andaðist Porvaldur Thoroddsen hinn 28. september
kl. 9 að kvöldi dags. Hann var hinn besti stuðnings-
maður rits þessa. Hver árgangur hófst með góðri og
langri ritgjörð eftir hann; alls eru átta ritgjörðir í Árs-
ritinu eftir hann, en hin síðasta þeirra, Kaflar úr fornsögu
Austurlanda, er svo löng, að hún er bæði í 5. og 6. ári.
Nú hefur Ársritið 7. árgang sinn með því að minnast
hans; er vonandi að Fræðafjelagið geti gert það betur
síðar en tæki eru á í Ársritinu, einkum með því að gefa
út Minningabók hans.
Þorvaldur Thoroddsen var einn hinn besti og lang-
fjölhæfasti, iðjusamasti og nýtasti vísindamaður og rit-
höfundur, sem ísland hefur alið. Enginn hefur frætt
menn, bæði innlenda og útlenda, svo vel og rækilega um
land vort sem hann. í þeim efnum bar hann svo mjög
af öllum öðrum, að það er eiginlega ekki hægt að bera
hann saman við neinn annan. Hann rannsakaði landið
miklu rækilegar en nokkur annar maður, og hann ljet sjer
eigi nægja að rannsaka það í nærri öllum greinum, eins
og það er nú, og fræða menn um það bæði á voru máli
og annara þjóða, heldur kynti hann sjer og rækilega
þekkingu manna og rannsóknir á landi voru frá upphafi
og fram á vora daga, og skýrði greinilega frá því öllu.
Hann var brautryðjandi að því, er snerti þekkingu manna
á Islandi; hann hefur þar algjörlega nýtt tímabil, því að