Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1923, Page 140
140
Smágreinar.
Minningarsjóður Sigurðar Jóhannessonar stórkaup-
manns, afmælisgjöf til Fræðafjelagsins.
Hinn ii. maí 1922 varð Hið íslenska fræðafjelag í
Kaupmannahöfn 10 ára, og hjelt það ársfund sinn þann dag.
Fyrir fundinn kom stórkaupmaður Jón Jóhannesson til forseta
fjelagsins, og færði fjelaginu heillaóskir sínar og 5000 kr. í
afmælisgjöf; skyldi með fje þessu settur á stofn minningar-
sjóður um föður gefandans Sigurð Johannesson stórkaup-
mann, er átti kjötverslunina á Höjbroplads 13, Kaupmanna-
höfn. Forseti skýrði fjelaginu frá heillaósk þessari og hinni
rausnarlegu gjöf á ársfundinum, og fálu fjelagsmenn honum
að tjá gefandanum þakkir fjelagsins fyrir þessa höfðing-
legu gjöf.
I samráðum við stjórn fjelagsins setti gefandinn skipu-
lagsskrá þá, er hjer fer á eftir, um sjóðinn:
Skipulagsskrá
um minningarsjóð Sigurðar Jóhannessonar stór-
kaupmanns, er sonur hans gafHinu íslenska fræða-
fjelagi í Kaupmannahöfn á 10 ára afmæli þess.
1. gr. Sjóðurinn er stofnaður af stórkaupmanni Jóni
Johannessyni til minningar um föður hans Sigurð Jóhannesson
stórkaupmann.
2. gr. Höfuðstóll sjóðsins er 5000 kr,, og skal ávaxta
hann samkvæmt þeim reglum, sem gilda um fje ómyndugra.
Verðbrjef sjóðsins skal skrásetja með nafni sjóðsins.
3. gr. Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn á
sjóðinn og stjórnar honum, og gerir árlega reikningsskil.
Reikninga sjóðsins skal endurskoða ásamt ársreikningum
Fræðafjelagsins.
4. gr. Af ársvöxtum sjóðsins skal ávalt leggja fjórða
hlutann við höfuðstól sjóðsins; hina þrjá fjórðu blutina skal
greiða Hinu íslenska fræðafjelagi sem tillag til þess að gefa
út rit til eflingar alþýðumentun á Islandi, sjerstaklega um ráð-
deild og efnahagi og þjóðþrif, verslun og verslunarsögu.
Kaupm.'innahöfn hinn 12. maí 1922.
Jón Jóhannesson