Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 25
RÉTTUR
25
Þessi tilhliðrunarsemi af hálfu verkalýðsins var ekki meira
metin en svo, af atvinnurekendum, að þeir knúðu verkalýðinn út
í eitt lengsta og harðasta verkfall, sem háð hefur verið hér á landi.
Margir hafa furðað sig á og spurt um, hvernig á því gæti staðið,
að jafn víðtækt verkfall og þetta, sem lamaði allar höfuðgreinar
atvinnulífsins, hefði getað varað svo lengi; eða sex vikur.
Þessari spurningu verður ekki svarað 1 örstuttu máli, en veiga-
mesta ástæðan er sú, að hér er risin upp auðug yfirstétt, sem rak-
að hefur saman gróða á undanförnum árum á sama tíma og kjör-
um verkalýðsins hefur farið hrakandi. Þessi nýríka yfirstétt hef-
ur ofmetnazt af auði sínum og völdum. Hún hefur skipulagt sig
betur en áður og náð sterkari tökum á efnahagslífi þjóðarinnar.
í skjóli hins erlenda hers, sem hún hefur kallað til landsins, hefur
henni eflzt kjarkur til stórræða í baráttunni gegn verkalýðshreyf-
ingunni. Innan þessarar auðstéttar eru komnir í valdaaðstöðu
menn, sem hafa sömu afstöðu til verkalýðshreyfingarinnar og bar-
áttu hennar og amerískir burgeisar. Einna berlegast hefur þetta
komið fram í afstöðu olíufélaganna, þessara dótturfélaga er-
lendra auðhringa, sem frá fyrsta til síðasta dags verkfallsins
höfðu frammi verkfallsbrot og reyndu á allan hátt að brjóta
verkfallið á bak aftur.
Sem afleiðing af þessari þróun yfirstéttarinnar taldi viss hluti
hennar sig færan um að taka upp nýjar og harðsvíraðri bardaga-
aðferðir gegn verkalýðshreyfingunni. Áætlun þessara manna
var sú að semja ekki við verkalýðinn, heldur þreyta hann í löngu
verkfalli og brjóta samtökin á bak aftur. Það átti að kenna þeim
verkalýð, sem á síðastliðnu hausti gerðist svo djarfur að kjósa
sér forystu fyrir heildarsamtökum sínum, sem ekki var þeirn
að skapi, að það væru aðrir menn og önnur öfl, sem hér eftir
ákvæðu, hvaða kjör verkalýðurinn hefði hverju sinni.
Þetta var áætlun hinna ofstækisfyllstu í hópi atvinnurekenda-
anna og yfirstéttarinnar, en ekki væri sanngjarnt að setja alla
mótherja verkalýðsins í nýafstaðinni deilu undir þessa flokk-
un. í hópi þeirra voru margir, sem ekki eru haldnir hatri og
lítilsvirðingu á verkalýðnum, enda þekkja margir þeirra hina
hörðu lífsbaráttu íslenzkrar alþýðu jafnvel af eigin raun. Þess-