Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 97
RÉTTUR
97
einkabraskslánamarkaði hafa það beinlínis verið talin góð kjör
hin síðari ár að fá lán með 20—25%, afföllum og 7% vöxtum af
þeim 75—80%, sem út eru greidd. Þær tölur, sem sannanlega
þekkjast lakastar úr þessum fjármálaheimi eru svo óheyrilegar,
að venjulegur heiðalegur alþýðumaður fær sig tæpast til að trúa
þeim. í vaxtahækkunum hafa bankarnir fylgst með, hvort það er
gert í þeim tilgangi að keppa um fjármagnið við einkabraskið,
skal ekki dæmt um hér. Og að lokum hefir Alþingi fetað slóðina
með því að ákveða 6]/2% vexti af því fé, sem það hefir til ráð-
stöfunar og skal þar nefnt mótvirðisfé, sem alþingi ákveður
hvernig notað skuli. Með því hefir beinlínis verið ákveðið af
hálfu hins opinbera, að Búnaðarbankinn eða stofnlánadeildir
hans gætu hvergi fengið lánsfé með lægri kjörum en 6 Vá %. En
þar með var jafnframt skapaður 4V2% vaxta halli í Byggingarsjóði
og 4% í Ræktunarsjóði. Þetta þýðir það, að með hverri milljón, sem
Byggingarsjóður tæki að láni og lánaði aftur þyrfti að greiða
45 000,00 kr. í vaxtahalla og Ræktunarsjóður 40.000,00 kr.
Þannjg er auðvitað dkki hægt að reka lánastarfsemi til
lengdar, nema mismunurinn fáist á einhvern hátt annarsstaðar
frá. Þannig hefir vaxtapólitík einkabrasksins bankanna og ríkis-
stjórnarinnar sett þessa lánastarfsemi landbúnaðarins í sjálf-
heldu, nema aðrar leiðir væru fundnar til að losna úr kreppunni.
E. t. v. væri réttara að orða þetta þannig að ríkisstjórnin eða
alþingi hafi skapað þessa sjálfheldu með því að elta okurvaxta-
pólitík einkabrasksins og bankanna. En jafnframt kom fljót-
lega að því, að Alþingi og ríkisstjórn stóð gagnvart afleiðingum
gerða sinna í þessu máli. Eitt af síðustu afrekum síðasta þings
var að lögfesta eina leið til úrlausnar á nokkrum hluta þessa
vandamáls. En ekki er þar stórmannlega að verki verið.
Leið þessi var í því fólgin að hækka útlánsvexti beggja sjóð-
anna um 1V2% eins og fyrr getur. Það þýðir að nú eru vextir
Byggingarsjóðs 3V2% og Ræktunarsjóðs 4%. Þetta hefir þau
áhrif á hinar árlegu afgjaldagreiðslur, að í Ræktunarsjóði sem
hefir flest lán með 20 ára lánstíma hækkar greiðslan úr 6,415%
í 7,358%. í Byggingarsjóði verður þetta þó miklum mun óhag-
stæðara. Þar hækkar árlegt afgjald úr 3,54% í 4,58%. í fljótu
bragði kann að virðast sem hér sé um smáræði eitt að ræða,
og svo munu þeir er að þessum málum standa vilja láta líta út.
7