Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 123
RÉTTUR
123
Europe, sem út kom í Englandi
snemma á þessu ári, fjallar um
alþýðulýðveldin í Austur-Ev-
rópu, Pólland, Tékkóslóvakíu
Ungverjaland, Rúmeníu og Búlg-
aríu Höfundurinn þregður í bók-
inni upp mjög gagngerðri og
fróðlegri lýsingu á þróun þess-
ara landa atvinnu og menningar-
lega og aimennri þróun þjóð-
félaganna frá stríðslokum. Auk
þess stiklar hann á þáttum úr
sögu þessara þjóða til að auð-
velda lesandanum að skilja þró-
unina í dag.
Höfundurinn hefur ágœta að-
stöðu til að gera viðfangsefninu
góð skil, þar sem hann hefur
oft heimsótt lönd þessi á síðari
árum og kynnt sér ástand þeirra
eftir föngum strax 1945, er hann
kom þar, nokkrum mánluðum
eftir að innrásarher Nazista hafði
verið hrakinn úr löndum þessum
og sum þeirra máttu teljast
rústir einar. Hann getur því af
reynslu og þekkingu lagt hlut-
lægt mat á þróun og ástand mála
þar í dag, ekki sízt þar sem segja
má, að hann hafi getað séð horn-
steininn lagðan að þeirri alls-
herjar uppbyggingu, sem þjóðirn-
ar standa nú í. Bókin ber það
með sér, að höfundur hefur reynt
að kynna sér málin eftir beztu
fáanlegum heimildum og aðstöðu.
Víða í bókinni kemur fram, að
hann hefur talað frjálslega og af
hreinskilni við stjórnarfulltrúa,
leiðandi menn kirkjunnar, rit-
höfunda og listamenn og einnig
að sjálfsögðu Við verkamenn og
bændur þessara landa.
Sagan af lífi verkalýðsins og
þróun þessara mála verður ekki
endursögð hér, en þær stað-
reyndir og áætlanir, sem höf.
skýrir lesandanum frá, eru ó-
rækar sannanir um þróttmikið
starf þessara framsæknu þjóða,
sem einskis æskja frekar en að
fá að lifa í friði við uppbyggingu
sína og eiga friðsamleg samskipti
við aðrar þjóðir.
Þess skal einnig getið, að bókin
er prýdd 13 teikningum, skemmti-
legum og vel gerðum, eftir konu
höfundar, Nowell Johnson.
Það er óhætt að mæla með
þessari bók við alla, sem áhuga
hafa á að kynna sér þróun þeirra
þjóðfélaga, sem hér um ræðir,
því að í henni er að finna fjöl-
þættan fróðleik um mál, sem
mikið eru rædd og afvegaflutt á
opinberum vettvangi.
B. S.
POLITICHE ÖKONOMIRE
— LEHRBUCH. (Kennslu-
bók í pólitískri hagfræði),
Dietz Verlag, Berlin 1955.
Rit þetta er samið af rússnesk-
um hagfræðingum, en hefur nú
verið þýtt bæði á þýzku, ensku,
dönsku og fleiri tungur. Það er
ætlað sem kennslubók í marx-
iskri hagfræði og er miklu ná-
kvæmara og viðameira en fyrri
kennslubækur á þessu sviði, eins
og t.d. bækur þeirra Segals eða
Leontjefs.
Bókin hefst á almennum inn-
gangi um svið og verkefni hag-
fræðinnar. Síðan koma kaflar um
þau hagkerfi, er voru undanfar-
ar auðvaldsskipulagsins, þ.e.a.s.
frumkommúnismann, þræla- og
lénsskipulagið, en meginviðfangs-
efni bókarinnar eru hagkerfi auð-
valds og sósíalisma. Bókin er, sem
fyrr segir, allýtarleg, yfir 700 bls.
og hin girnilegasta til fróðleiks.