Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 92
92
R É T T U B.
semi hennar, að um síðustu áramót námu útlán hennar 6,3 millj.
kr. Er slíkt mjög bagalegt. T. d. hefur algjörlega skort lánsmögu-
leika fyrir þá, sem þurfa að kaupa sér bújörð, utan það litla,
sem Veðdeildin hefur reynt að greiða úr í því efni, en geta hennar
til þess alls ófullnægjandi. Sömuleiðis hefur þess enginn kostur
verið að fá lán til kaupa á bústofni, því hvorki Veðdeild né Rækt-
unarsjóður hafa getað leyst það mál. Lán veðdeildarinnar mega
aðeins nema 60% af matsverði jarða og 30% af matsverði hús-
eigna. Er á því auðséð að þau hrökkva skammt fyrir kaupum á
slíkum eignum. En alger fjárskortur hefur hindrað úrbætur í
þeim efnum. Verulegur hluti þess fjár, sem veðdeildin á nú í út-
lánum er fenginn að láni hjá sparisjóðsdeild bankans með mun
hærri vöxtum. Mun síðar vikið að áhrifum þeirra.
Þess ber þó að geta að í lok síðasta þings var samþykkt að
leggja til veðdeildarinnar 4 millj. kr. af tekjuafgangi ríkissjóðs
1954. Mun það bæta úr brýnustu þörf í bili, en verður áreiðan-
iega fljótt að hverfa.
Til frekari glöggvunar á því, hvernig mál þessi standa og þróun
þeirra síðari árin, skal hér birt yfirlitsskýrsla um útistandandi
lánsfé hverrar þessara deilda eins og það hefur verið um hver
áramót síðan 1946. Er það tekið saman eftir árlegum reikningum
bankans og segir til um vöxt útlánafjárins að frádregnum árleg-
um afborgunum.
Skýrsla um útistandandi lánsfé stofnlánadeilda Búnaðarbankans
1946—1954.
Bygging.sj. Ræktunarsj. Veðdeild Samtals
Ár þús. þús. þús. þús.
1946 2.445 1.539 1.298 5 282
1947 7,212 3.076 1.408 11.696
1948 12.540 6.303 1.470 20.313
1949 18 159 11.048 1.613 30.820
1950 25.131 17.704 1.962 44.797
1951 33.306 26.957 2.186 62.449
1952 42.579 42.485 3 662 88.726
1953 50.737 54.876 4.378 109.991
1954 60 119 74.006 6.308 140.433
Þessi skýrsla er fróðleg sem hinar fyrri.