Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 111
RÉTTUR
111
Stéttarleg afstaða bændanna
I þessari ritgerð hefir fyrr verið minnzt á bændastéttina sem
fullkomlega vinnandi stétt, og að því leyti hliðstæðu verkamanna
og sjómannastéttanna. Ohætt mun einnig að fullyrða að bænda-
stéttin mun leysa af hendi, miðað við fjölda, meira af líkamlegri
vinnu, en nokkur önnur stétt þjóðfélagsins, að undanteknum
sjómönnum þegar þeir eru að veiðum.
Eðli landbúnaðarins sem atvinnuvegar gerir þessa kröfu einkum
meðan hann er í þeirri deiglu, að umskapast frá því að vera
frumstæður fleytingsbúskapur til ræktunarbúskapar sem hann
þarf að vera. En að umskapa hann þannig kostar feikna átak
bæði hvað fjármagn og vinnu snertir eins og sýnt hefir verið
hér að framan.
Auk þess bætist svo það við, að hann er mjög og verður ætíð
háður vissum erfiðleikum, sem stafa af okkar breytilegu veðráttu,
og ýmsum staðháttum. Slíkt er þó ekkert séreinkenni fyrir okkar
landbúnað. í flestum löndum heims er við skyldar aðstæður að
etja þótt misjafnar ástæður valdi í hinum ýmsu löndum.
Hitt er svo annað mál, að þótt óhætt sé þess vegna að slá því
föstu að bændurnir séu fullkomlega vinnustétt, er þess vegna
geti ekki átt stéttarlega samstöðu með neinum öðrum en verka-
lýðnum og öðrum slíkum, þá hafa þeir þó sérstöðu að öðru leyti,
sem gerir auðvelt að beita blekkingum og fá þá til að líta á sig
sem stéttarlega andstæðinga verkalýðsins. Sú sérstaða felst í því
að þeir eru a. m. k. í orði kveðnu sínir eigin húsbændur, þar sem
þeir reka sjálfir atvinnufyrirtæki sín. Það hefur heldur ekki verið
sparað að beita þeim áróðri, til þess að skapa andstöðu og úlfúð
milli þessara stétta.
Eitt gleggsta dæmið um þjóðfélagslega samstöðu tveggja
stétta er það hve mikla möguleika einstaklingurinn hefur til
auðsöfnunar, af þeirri atvinnu, er stéttin stundar. Og hvort
sem litið er á bændur, verkamenn eða sjómenn þá verður vand-
fundinn sá einstaklingur, sem safnað hefur auði af vinnu sinni í
þessum starfsgreinum. í raun og veru væri réttast að segja að
slíkur einstaklingur væri ófinnanlegur. Þetta er raunverulega lang- újj
gleggsta sönnunin í þessu máli. Aftur á móti verður því ekki neitað, jfjí
að auður hefur safnazt á hendur einstaklinga í voru þjóðlífi, og*M1
það svo að óhætt má fullyrða að í engu landi Evrópu séu milljóna-*®