Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 53
RÉTTUR
53
afstæðiskenninguna. Menn hafa gert ráð fyrir endanlegum, hnatt-
mynduðum alheimi í fjórvíðu eða margvíðu rúmi sem og al-
heimi, er væri að stækka og ætti sér ákveðið upphaf.
En svo sem höfundur rekur, hafna slíkar kenningar oftast í
rökleysu og dulfræði, enda forsendur þær eða staðreyndir, sem
þær eru reistar á, sjaldnast nógu traustar.
Nefna má sem dæmi kenningu þeirra Lemaitres og Milnes um
víkkun alheimsins. Staðreynd sú, sem kenningin er reist á, er að
litrófslínur þyrilþokanna færast í átt til rauða hlutans, frá okkur
að sjá. Hefur það, með hliðsjón af ýmsum kunnum fyrirbærum,
verið skýrt á þann veg, að stjarnþokur þessar væru að fjarlægjast
með sívaxandi hraða. Annars er hægt að skýra þessa litrófs-
tilfærslu á annan hátt. Forsendan er því mjög ótraust. En ger-
um ráð fyrir, að skýringin sé rétt og stjarnþokurnar séu að
fjarlægjast. Af þeirri staðreynd verður með réttu ekki dregin
önnur ályktun en sú, að stórvetrarbrautin, sem athuganir vor-
ar ná til, sé sem stendur að víkka. Hins vegar verður ekkert
ályktað af því um alheiminn, sem sjálfsagt telur óteljandi vetr-
arbrautir, þar sem þessu kann að vera á ýmsan veg farið. Jafn
óleyfilegt er að álykta langt aftur í tímann og gera ráð fyrir,
að þessi útþensla hafi átt sér stað frá upphafi og byrjað með
því að örlítil frumögn hafi sundrazt fyrir um það bil 2 milljörð-
um ára.
Kenningu þessari hefur verið sérstaklega fagnað af páfa og
talin sönnun þess, að fráscgn biblíunnar um sköpun heimsins
hafi við full rök að styðjast. Hins má einnig geta, að uppgötvanir
Sovét-stjarnfræðinga um ólíkan aldur hinna ýmsu stjarnþoka og
mikinn aldursmun þeirra og stjarnanna koma ákaflega illa heim
við þessa kenningu í þeirri mynd, sem hún er að jafnaði sett
fram. Hefur það með öðru orðið til þess, að ýmsir fyrrveranii
málsvarar hennar, hafa síðar hneigzt að hinni svonefndu „sí-
sköpun".
Onnur kenning, sem hlotið hefur opinbera velþóknun og bless-
un páfa, er ,varmadauða-kenningin" svonefnda. Hún gerir líka
ráð fyrir „sköpun" og „dauða" þessa heims, þótt með öðrum hætti
sé. Ymsir eðlisfræðingar hafa reynt að tengja með einhverjum