Réttur - 01.01.1955, Blaðsíða 99
RÉTTUR
9ð
Nú skal enn úemur á það bent, að með þessu er þó -síður
en svo jafnaður vaxtahalli af því fé er sjóðirnir þurfa að taka
að láni með 6 V2 % vöxtum. Þrátt fyrir þetta er 3% vaxtahalli í
Byggingarsjóði og 2V2 % í Ræktunarsjóði. En því miður er hætt
við að þegar einu sinni er gengið inn á þá braut að nota þessa
handhægu jöfnunarleið, þá verði ekki látið staðar numið hér,
heldur öll leiðin gengin í smáskrefum þó, til þess að láta sem
minnst á því bera,sem er að gerast. Mundi það líka í fyllsta
samræmi við það, að nú eru sumir forsvarsmenn bændastéttar-
innar farnir að prédika það opinberlega fyrir bændum að draga
þurfi úr framkvæmdum og fjárfestingu. En samkvæmt því sem
sýnt er fram á hér að framan er ljóst til hvers það mundi leiða.
En víst er um það að þessar fyrnefndu ráðstafanir munu segja
óþægilega til sín í framkvæmdum landbúnaðarins á næstu
árum og áratugum, verði þær látnar gilda til frambúðar. Og
hvað mun verða ef enn þá lengra verður gengið á sömu braut?
Hvernig verður lánsfjárþörfin leyst?
Að gefnum þessum upplýsingum, kann nú mörgum að virð-
ast ekki auðvelt að leysa úr lánsfjárþörf landbúnaðarins á þann
hátt sem hér að framan er gert ráð fyrir, með því að tryggja
hinum þremur stofnlánadeildum bankans allt að 300 millj. kr.
í eigin fé, svo að inngreiddir vextir geti lagst við höfuðstólinn
og gengið til að mæta vaxandi lánsfjárþörf. Þetta er þó verk-
efni, sem þarf að leysa eins og sýnt hefur verið fram á.
Þess hefir enn fremur verið getið, að skuldlaus eign stofn-
lánadeildanna allra væri nú rúmar 65 millj. svo hér virðist
mikið bil að brúa.
Fyrir fáum árum var sú ákvörðun tekin af Alþingi að láta
helming Mótvirðissjóðsins ganga til landbúnaðarins sem lánsfé,
þegar hann greiðist inn aftur frá þeim fyrirtækjum, er fengu
hann lánaðan í fyrstu umferð, en það eru, sem kunnugt er, raf-
magnsvirkjanir og áburðarverksmiðjan. Hefir mikið verið gert úr
því hve mkilsverð þessi löggjöf væri fyrir landbúnaðinn. En
samkvæmt því sem hér að framan er sagt fylgir sá böggull
skammrif i, að féð á að endurgreiðast á 20 árum með 6 % % vöxtum.
Slíkt fyrirkomulag verður í raun og veru ómögulegt í fram-
kvæmd, nema að fá sífelt annað fjármagn jafnhliða bæði til