Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 49

Réttur - 01.01.1955, Page 49
RÉTTUR 49 kenndu mjög vísindi 19. aldar, samrýmast ekki hinum díalektiska hætti hlutveruleikans, sem kemur nú æ betur á daginn. Þetta hef- ur leitt til hugmyndafræðilegrar kreppu í vísindunum og það ein- mitt samtímis því sem borgarastéttin hefur hneigzt æ meir til dulýðgi og hughyggju í heimspeki sinni og opinberum áróðri. Vísindamennirnir hafa fæstir nokkur kynni af hinni díalektisku efnishyggju, þeirri stefnu, er helzt getur leitt til lausnar á þeim vandkvæðum, sem um er að ræða. Þeir eru oft sjálfir aldir upp í borgaralegri heimspeki, og hinn almenni áróður í dulýðgi- og hughyggjuátt hefur að sjálfsögðu áhrif á þá marga hverja. En það er einmitt hin borgaralega'heimspeki, sem leggur þeim til ýmis undirstöðuhugtök, og þar lætur hugtakaruglingurinn, röng samsömun frábrugðinna hugtaka ósjaldan að sér kveða. Sam- band nauðsynjar og tilviljunar er oft rangtúlkað — og tilviljunin talin jafngilda orsakaleysi og tölfræðileg eða statistísk lögmál slíkt hið sama. Líkinda- eða sennileikareglur eru gerðar að alger- lega huglægu fyrirbrigði og slitnar úr tengslum við hlutveru- leikann. Altækt orsakasamhengi er túlkað sem vélræn nauð- hyggja í stíl við Laplace og efnishyggjan oftast talin jafngilda vélrænni efnishyggju. Er ekki að furða, þótt mörgum verði tor- ratað, þegar svo er í pottinn búið. Þess er og að gæta, að hughyggjan á sér þekkingarfræðilegar rætur. Þekkingaröflun mannkynsins er slungin mörgum þáttum, endurspeglun hlutveruleikans flókin og margbrotin. Ef einstakir þættir hennar eða áfangar eru slitnir úr tengslum, einangraðir og ýktir, liggur leiðin út á torleiði hughyggjunnar. — Hættan á rangri samsömun eða haldlitlum alhæfingum liggur þá oft við borð, en þó er það ekki sízt sértekningin (abstraktiónin), sem mörgum hefur orðið þar að fótakefli. Flestir kannast við Pýþa- góras hinn gríska og lærisveina hans, sem kalla má að verið hafi að ýmsu leyti frumkvöðlar nútímavísinda, með því að þeir tóku fyrstir að rannsaka hlutina að ráði frá sjónarmiði megindar, eða stærðar og tölu. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að stærðar- og töluhlutföll skiptu meginmáli fyrir aðrar eigindir hlutanna, en höfnuðu svo að lokum í talna-dulfræði. Talan eða tölugildið varð hinn hinzti og sanni veruleiki. Megindin (eða stærð og tala),
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.