Réttur - 01.01.1955, Síða 82
82
RÉTTUR
síðustu manntöl. Þorsteinn Þorsteinsson fyrverandi hagstofustjóri
gaf opinberar upplýsingar um þetta í viðtali við Morgunblaðið
5. maí 1953.
í því viðtali sagði hann m. a. þetta:
Ef sama fjölgun lieldur áfram og var s.l. áratug mun íbúa-
tala landsins nema 290 þús. árið 1990.“ Þetta þýðir að eftir 35 ár
verði landslýðuur orðinn fast að helmingi fleiri en nú. Og jafn
vel þótt þessi áætlun stæðist ekki alveg, þá má óhætt fullyrða,
að um næstu aldamót verði íbúatalan ekki minni en 300 þús.,
og sennilega meiri.
Skyldi þetta nú ekki vera þörf hugvekja þeim til athugunar,
sem þykjast hafa áhuga fyrir gengi landbúnaðarins, og telja
hann eina öflugustu stoð íslenzkrar þjóðmenningar, en hafa
samt látið sér fátt finnast um stofnun nýrra heimila við land-
búnaðinn, og jafnvel haft fullkomlega horn í síðu þeirrar starf-
semi, sem að því hefir miðað.
Verði fyrrnefndri þróun um fækkunina í landbúnaðinum ekki
snúið við, þá hlýtur af því að leiða, að áhrif hans sem atvinnu-
vegar og áhrif bændastéttarinnar í þjóðlífinu fara stöðugt þverr-
andi. Núna lifa ca 17—18 % þjóðarinnar á landbúnaði. Eiga það
að verða 7—8% um næstu aldamót eða jafnvel færra? Slík
þróun er þekkt hjá ýmsum öðrum þjóðnum, t. d. hjá Englend-
ingum á öld gufuaflsins og iðnaðarbyltingarinnar. Enda þurfa
þeir nú að sækja víðsvegar um heim til fanga, hvað snertir
öflun landbúnaðarneyzluvara. Við íslendingar þurfum ekki að
vænta þess að heppilegasta þróunin gerist af sjálfu sér án þess
að atburðarásinni sé stjórnað. Sé hún látin afskiptalaus megum
við nokkurnveginn vera viss að fá þá þróun er sízt skyldi.
Þá liggur næst fyrir að athuga hvað áfram hefir miðað í
þessu efni og hvaða verkefni eru framundan. Síðan 1929 hafa
ákvæði um lán til nýbýlastofnana verið í lögum, því í fyrstu
lögunum um Byggingar- og landnámssjóð var gert ráð fyrir
lánum til nýbýlastofnana í tveimur flokkum þ. e. bæði á ræktuðu
og óræktuðu landi. Með lögunum um nýbýli og samvinnubyggðir
frá 1936 voru þessi ákvæði gerð fyllri, og einnig gert ráð fyrir
nokkrum styrk. Því miður varð þó lítið úr framkvæmdum. Og
þegar löggjöf þessi féll úr gildi með gildistöku nýju laganna
um áramótin 1946—’47 þá hafði samtals á 18 árum verið lánað úr
Byggingarsjóði til íbúðarhúsa á nýbýlum 275.500 kr.