Réttur


Réttur - 01.01.1955, Page 118

Réttur - 01.01.1955, Page 118
118 RÉTTUR um að breyta í fast framlag þremur tilteknum lánum að upphæð samtals yfir 20 milj. kr. sem Byggingarsjóður og Ræktunarsjóður höfðu fengið, voru fyrst fluttar á þinginu af einum þingmanni Sósílistaflokksins. Þannig voru sjóðirnir losaðir við vaxtagreiðslu, sem numið hefðu hálfri til heilli millj. árlega, og dregið úr útlánastarfseminni að sama skapi. En upptök þessa máls reyndu báðir núverandi stjórnarflokkar að eigna sér og nota sér til fylgisaukningar í síðustu kosningum. A sama þingi flutti einn af þingmönnum flokksins frumvarp um að ríkið tæki lán í Þjóðbankanum gegn veði í jarðeignum sínum í sveitum landsins og legði það sem framlag í stofnlána- deildir Búnaðarbankans. Og þegar það mál var til meðferðar í þinginu að veita Búnaðarbankanum rétt til að hafa með höndum nokkra gjaldeyrisverzlun, þá var Sósíalistaflokkurinn eini þing- flokkurinn ,sem því máli fylgdi heill og óskiptur gegnum báðar deildir þingsins. Enginn af þingmönnum hans skarst úr leik. Hinir voru allir svo klofnir um það mál, að ekki fékkst nægilegt viðbótarfylgi við þingmannatölu Sósíalistaflokksins til að tryggja því framgang. Hefði áreiðaniega verið öðruvísi og betur umhorfs í lánsfjármálum landbúnaðarins núna ef hagnaður af slíkri gjald- eyrisverzlun hefði farið til að efla stofnlánadeildirnar. Mundu þá vafalaust aldrei hafa séð dagsins ljós hin nýju vaxtahækkunar- lög, sem Alþingi samþykkti á síðasta þingi. Þannig hefir starf Sósíalistaflokksins í þágu landbúnaðarins einkennzt af tvennu. í fyrsta lagi baráttunni fyrir því, að tryggja bændastéttinni rétt til sömu kjara fyrir sín störf í sköpun þjóðar- auðsins og öðrum stéttum, er að öðrum framleiðslugreinum vinna. Og jafnframt hefir þetta orðið barátta fyrir gagnkvæmum, heil- brigðari skilningi þessara stétta á kjörum og viðhorfum hvorrar til annarrar, sem nauðsynlegur er til að skapa heilbrigt þjóðfélag. Hins vegar hefir það mótazt af baráttunni fyrir því að skapa bændastéttinni möguleika til tæknilegrar uppbyggingar með ó- dýrri, heilbrigðri lánastarfsemi, ásamt hæfilegri skipulagningu, sem tryggði hagnýtingu fjármagnsins, svo vel sem auðið væri. Það hefir óneitanlega unnizt mikið í þessum atriðum báðum, þótt ennþá skorti mjög mikið á að fjármagnsþörfin sé að fullu leyst eins og sýnt hefir verið fram á. Og þessari baráttu verður að halda sleitulaust áfram, og mun það verða gert. Eitt er það orðtak, sem nú gengur fjöllum hærra í pólitískum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.