Samvinnan - 01.03.1931, Page 69
SAMVINNAN
63
landinu. Myntslátta er einokuð í öllum löndum, og venju-
lega er það ríkið sjálft, sem hefir hana með höndum.
Og hvers vegna ætti menn að fara öðruvísi að, þegar um
er að ræða gangeyri sem bankaseðla, sem eru til þess
ætlaðir að koma í stað málmmyntar og eiga að hafa lög-
ákveðið gangverð eins og hún? Það er líka í alla staði til
óþæginda að hafa seðla af mörgum gerðum. Þess vegna
var það lögboðið í Bandaríkjunum að hafa seðla allra
banka af sömu gerð og meira að segja krafizt þess, að
ríkið sjálft léti gera þá. En afleiðingin af þessu varð sú,
að menn sáu, að heppilegast var að hafa aðeins einn
seðlabanka, sem síðar varð þjóðbankinn.
Einkaréttur til seðlaútgáfu hefir þegar verið lögfest-
ur í Frakklandi, Austurríki, Spáni, Belgíu, Noregi og
Danmörku, og hefir aðalbanki þessara landa einn saman
rétt til seðlaútgáfu, enda þótt þeir bankar sumir hverj-
ir sé að meira eða minna leyti einkabankar. í Rússlandi,
Sviss, Svíþjóð og Finnlandi og flestum ríkjum Suður-
Ameríku er einkarétturinn fenginn ríkisbanka í hend-
ur.i)
1) Ríkisbanki Svíþjóðar er, svo sem áður segir,
ríkisstofnun síðan árið 1668. Ríkisþingið ber ábyrgð á honum
og vemdar hann, „svo að hann verði rekinn óáreittur af full-
trúum þeim, sem deildir þingsins velja, og í samræmi við til-
skipanir þær, lagaákvæði og reglugerðir, sem um hann eru
settar eða settar kunna að verða af rikisþinginu". Stjórnina
skipa sjö fulltrúar, og velur ríkisþingið sex af þeim, en kon-
ungur hinn sjöunda (formanninn). Auk ríkisbankans hafa
margir aðrir hankar haft réttindi til seðlaútgáfu. En með
bankalögunum 1897 er ríkisbankanum fenginn einkaréttur til
seðlaútgáfu frá 1904. (í raun og veru hættu aðrir bankar seðla-
útgáfu 1. ágúst 1903).
Finnlands banki var stofnaður árið 1811. Æðstu
stjórn hans skipa sex menn, sem kjömir eru af landsþinginu.
Fjórir endurskoðendur eru valdir á sama hátt. það er því ekki
landsstjórnin, heldur þingið, sem yfir hankanum ræður. Áður
en bankalögin frá 1886 gengu í gildi, var réttur til seðlaútgáfu
veittur öðrum bönkum með vissum skilyrðum, enda þótt að-
eins einn notaði sér þau réttindi og það í mjög smáum stíl.