Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 17

Andvari - 01.01.1979, Page 17
andvari PÁLL ÍSÓLFSSON 15 orði um hann, að hann hefði reynzt sér ,,ekki aðeins bezti kennari, lieldur eins og faðir og sálusorgari." Karl Straube var um fertugt, þegar fundum þeirra Páls bar fyrst sam- an. Hann hafði byrjað tónleikahald liðlega tvítugur og gat sér brátt frægð- arorð sem frábær Bach-túlkandi og fyrir kynningu á orgelverkum Regers. Hann hafði starfað í Leipzig frá 1902, er hann gerðist organleikari við Tómasarkirkjuna. Frá 1903 var hann einnig stjórnandi Bachvereinkórs- ins. Kennari við Tónlistarháskólann varð hann 1907 og prófessor ári síðar. d il hans sóttu nemendur frá mörgum löndum, og komust færri að en vildu. Þegar Páll Isólfsson bættist í nemendahópinn hjá Straube, mun hann tæpast hafa haft þann undirbúning, sem Straube annars krafðist, þegar nýir nemendur áttu í hlut. Páll gat þess til, að sjálfsögðu i gamni, að hann hefði langað til að geta sagt: „Jafnvel Islendingur lærði hjá mér." En það er fátt vitað um þennan mann, sern bendir til að hégómaskapur al nokkru tagi hafi ráðið gerðum hans. Hitt er sennilegra, að hann hafi talið sig finna í fari þessa unga íslendings einhverjar þær gáfur og hæfileika, sem vert væri að hlúa að og leggja rækt við. Hvernig sem þessu kann að vera farið, er það víst, að Straube lét sér ákaflega annt um þennan nýja nemanda sinn. Það var ekki aðeins að hann kenndi honum orgelleikinn frá fyrstu pedalæfinguin til flóknustu verka Bachs, Regers og annarra stórmeistara, heldur fylgdist hann líka með framförum Páls í öðrum greinum og hafði bréfasamband við Jón Pálsson, til þess að láta hann vita hvernig náminu miðaði áfram. Utan námsefnis- ins ræddi hann við Pál um margvíslegustu hluti, enda var hann ákaflega fjölfróður og víðlesinn og átti afar mikið og gott bókasafn, sem Páll naut góðs af. Hann vakti hjá nemanda sínum áhuga á bókmenntum, sögu og heimspeki og leiðbeindi honum um lesefni i þessum greinum og öðrurn. Páll sagði síðar á ævinni, að Karl Straube, Sigurður Nordal og Árni Kristj- ánsson hefðu verið beztu ráðgjafar sínir um bókaval. Straube var aðsópsmikil persóna og áhrifaríkur í viðkynningu, að sögn Páls. Kennari var hann frá- bær, en gat verið strangur og átti til að taka óþyrmilegum tökum þá nem- endur, sem honum þótti sýna af sér yfirlæti og hroka. En aldrei mun hafa reynt á það í viðskiptum þeirra Páls. Straube æfði árlega mcð Bachverein-kórnum Mattheusarpassíu og kantötur Bachs, óratóríur Hándels og kórverk eftir Beethoven, Brahms °g marga aðra meistara. Hann lét orgelnemendur sína syngja með kórnum, og kynntust þeir þannig verkefnunum „innan frá“, ef svo má segja, en marg-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.