Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 32

Andvari - 01.01.1979, Page 32
30 JÓN ÞÓRARINSSON ANDVARI skipti að túlka verk meistaranna." Honuin rann til rifja sú kaldhæðni, sem hann þóttist íinna í fari Islendinga, ásamt tómlæti þeirra og virðingarleysi fyrir ýmsu, sem öðrum þjóðum er heilagt. Hann var trúmaður, þótt ekki hefði hann mörg orð um viðhorf sín í þeim efnum. Hann efaðist ekki um tilveru æðri máttarvalda, trúði á mátt bænarinnar og vildi engu neita um tilveru fyrirbæra, sem nefnd hafa verið yfirskilvitleg. Páll Isólfsson var á margan hátt mikill hamingjumaður. Hann var ágæt- um gáfum gæddur, eins og fram hefur komið. Þótt ekki sliti hann skóla- bekkjum í æsku fremur en mörg önnur ungmenni af sömu kynslóð, naut hann þess, að menningarlíf stóð með ótrúlegum blóma á Stokkseyri og Eyrarbakka á uppvaxtarárum hans. Hann er eina meiri háttar tónskáld íslenzkt, sem hefur átt tónskáld að föður. I sérgrein sinni naut hann þeirrar beztu menntunar, sem völ var á. Þegar hann fór til náms, voru dönsk áhrif svo til einráð í íslenzku tónlistarlífi, en Danir höfðu hins vegar frá ómunatíð sótt flest til Þjóðverja í þeim greinum. Hér var brotið við blað: Páll leitaði til höfuðbólsins fremur en hjáleigunnar, þegar hann hleypti heimdraganum. Hann drakk i sig þau menningaráhrif, sem að honurn streymdu, hafði glöggan skilning og gott minni. Hann var þeirri gáfu gæddur, að geta dregið ályktanir og lærdóma bæði af lestri sínum og reynslu. Hann valdi sér til félagsskapar og naut umgengni við m:rga gáfu- og menntamenn, sem að sínu leyti sóttust eftir félagsskap hans og mátu hann mikils. Hann kunni vel að nýta sér þau samskipti til aukins þroska. Þannig gerðist hann fjölmenntaður rnaður langt umfram margan þann, sem langskólagenginn er kallaður. í list sinni naut hann óskoraðrar viðurkenningar allra dómbærra og óvilhallra manna, bæði senr organleikari og tónskáld, og vinsælda með:l almennings umfrain flesta menn aðra. Þótt lífskjörin væru erfið á fyrstu árunum hér heima, rættist úr því, þegar fram liðu stundir. Og hann naut þeirrar sérstöku gæfu að verða rnestur áhrifamaður um þær öru framfarir, sem urðu í íslenzku tónlistarlífi á fyrra helmingi þessarar aldar. Páli ísólfssyni var sýndur margvíslegur sómi fyrir störf sín og afskipti af tónlistarmálum. Hann var sæmdur fjölda heiðursmerkja, innlendra og erlendra, og var heiðursfélagi ýmissa samtaka listamanna. Oslóarháskóli veitti honum heiðursdoktorsnafnbót 1945, og 1956 var hann kjörinn félagi Konunglegu sænsku tónlistarakademíunnar. I einkalífi sínu varð honum einnig flest til hamingju. Hann kvæntist 1921 Kristínu Jónsdóttur Norðmann, fíngerðri og listhneigðri konu. Rörn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.