Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1979, Side 58

Andvari - 01.01.1979, Side 58
56 ANDVARi VILHJÁLMUR Þ. GÍSLASON nokkuð skörulegar greinar, en inngangurinn var kvæði eftir Guðmund skólaskáld: Fálkinn. ,,Við munum fara fram á sem fullkomnast sjálfstæði hinni íslenzku þjóð til handa,“ sagði jónas Guðlaugsson um stefnu blaðsins, og svo það, að búnaðarmál, alþýðumenntun og bindindi skyldu verða ofarlega á dagskrá, en ekki fór mjög mikið fyrir því. Hann ræddi um það, að nýir tírnar og nýjar hugsjónir væru komnar til sögunnar og að hin „gamla og óeðlilega flokkaskipting“ ætti að hverfa með öllu. Hann sagði, að Valurinn mundi taka upp aðskilnaðarstefnuna, styrkja listir og vísindi og ætti von á „fulltingi margra okkar beztu skálda“. Þá sögðust þeir félagar vera á móti „krossatildrinu". Valurinn hafði einnig áhuga á erlendum bókmenntunr, og dálítið af þýðingum eða þýðingabrotum birtist þar, - Turgenjef og Allan Poe - og auðvitað Heine, sem lá hér í landi síðan á Fjölnis- dögum og Jónasar Hallgrímssonar. Einnig var þýddur Viggo Stuckenberg, en hann hafði talsverð áhrif á íslenzka ljóðagerð þessara ára. Kveðskapur Jónasar Guðlaugssonar og blaðamennska héldust mjög í hendur. Hann finnur á þessurn árum fátækt ættjarðar sinnar jafnframt fegurð hennar: Ég finn að fátæk ertu, mín fagra œttarjörd, ég kannast vel við kotin þín og kjörin ströng og hörð. Blaðamennska Jónasar Guðlaugssonar á ísafirði varð fremur endaslepp, svo að hvorugur aðili blaðsins mun hafa verið sérlega ánægður. Jónas Guðlaugsson skrifaði blaðagreinar lipurt og slétt og stundum nokkuð ljóðrænar, fremur en að um harð- snúna málafylgju væri að ræða. Jónas fór utan upp úr þessu til Noregs, og þegar hann kom heirn aftur, var orðið nokkuð öðruvísi umhorfs í íslenzkum stjórnmál- urn en þegar hann fór. Sambandslaganefndin og uppkastið var nú aðaldeilumálið, og þegar Jónas kom aftur heim til Reykjavíkur, var hann ákveðinn stuðningsmaður uppkastsins, sneri baki við sínum garnla flokki og gerðist heimastjórnannaður. Hann var þá um tíma ritstjóri Reykjavíkur, unz Jón Ólafsson tók við blaðinu. Samt skrifaði hann ekki rnjög rnikið urn stjórnmál, en hugur hans hneigðist meira og meira að skáldskap, og árið eftir frumvarpsdeiluna kom út fyrsta kvæðabók hans, sem verulega athygli vakti á honum, Dagsbrún, 1909. Þó að Jónasi Guðlaugssyni væri létt um að skrifa óbundið mál og ýmsar blaða- greinar hans væru liprar, var blaðanrennska eiginlega ekki við hans eðli. Stjórn- málaáhugi hans virðist hafa verið nokkuð hvikull og fremur tilfinningamál en rótgrónar athuganir eða sannfæringar. Hann var unnandi frelsisins og sjálfstæðis- ins sem skáldlegrar hugsjónar, fremur en sem ákveðinnar pólitískrar kenningar. Hann túlkaði þessar hugsjónir sínar öllu fremur í bundnu máli en lausu, en ýmis fyrstu ættjarðar- og hvatningarkvæði hans höfðu verið fremur blælítil. Allt þetta sýndi samt bráðþroska hans og hagmælsku og kjark hans, einlægni og framsækni, 3m í surrira augum var framhleypni. Þegar Jónas kom úr fyrstu utanför sinni eftir Isafjarðarblaðamennskuna, var hann studdur fjárhagslega af nokkrum Reykvíkingum, sem höfðu trú á hæfileikum hans. Hann átti þá oft erfitt uppdráttar, en mér hefur verið sagt af vinum hans þá, að hann hafi samt alltaf verið kátur og vonglaður og fullur af alls konar hugmynd-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.