Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1979, Page 65

Andvari - 01.01.1979, Page 65
andvari HALLÆRI OG HNEYKSLISMÁL 63 það niður hundruðum saman. Hafísinn fyllti firðina á Norður- og Austurlandi í apríl og liggur þar enn (í byrjun júlímánaðar samkvæmt síðustu fréttum); hann rak einnig inn á suðurfirðina á Austurlandi og er það mjög óvanalegt, svo að vorið naumiega var byrjað í lok júní. Sökum þess að íbúana síðastliðið ár skorti bæði hey og forða, þá hafa þeir eigi efni á að kaupa korn og mais, sem hefir verið flutt upp til fóðurs, og þar að auki hafa samgöngur þeirra við verzlunarstaðina hindrazt af illviðrunum. Þess vegna hefir peningur þeirra svo þúsundum skiptir fallið, sauð- burður misheppnazt, sauða- og kúamjólk, sem er aðalfæða íslendinga, skortir, hin vanalega haustverzlun þeirra fjársala, tólg og ull, sem þeir verða að hafa í staðinn fyrir peninga til þess að kaupa fyrir aðfluttar nauðsynjavörur, mun algjörlega bregðast þeim. Síðast í apríl kom ofsaveður, sem varaði í tíu daga, og sökkti í kaf með sandroki mörgum bæjum í sveitunum kringum Heklu. Og að lyktum komu mislingarnir: þeir gengu þar fyrir 36 árum, og munu þeir verða banvænn og enginn smáræðis-sjúkdómur á þeirri þjóð, sem eigi er þeim vön. Þeir komu fyrst í Reykjavík, og liggur þar nú nálega helmingur íbúanna, en margir eru dánir, og nú eru þeir að dreifast út um landið. (Daily News 8. ágúst, ísafold 8. september 1882). Menn brugðust vel við áskorun Morris til samskota, og 22. september var sjóðurinn orðinn 3.700 sterlingspunda, eða tæplega 67.000 'kr. (Það skal nefna sem dæmi verðs krónunnar, að 1882 voru Reykvíkingar að kvarta yfir að þurfa að borga 24 aura fyrir pundið af sauðakjöti (Skuld 10. nóvember). Rúgur kostaði 22 kr. og kaffi 60 kr. sekkurinn í Stykkishólmi (Arbók Snæfeflinga og Hnapp- dæla, Lbs. 616 4to).) Meirihluta fjárins var varið til fóðurkaupa, og var Eiríkur útnefndur til að fara með gjafavörurnar til Islands og sjá um úthlutun þeirra. Hinn 5. október lagði hann af stað með 9kipinu Lylie, sem kaupmenn tveir hö'fðu útvegað nefndinni, og þrátt fyrir margs konar erfiði og illviðri rak hann erindi sitt af mestu samvizlkusemi. Vörurnar voru settar i land á Djúpavogi, í Reykjavík, á Borðeyri, í Skagafirði og á Akureyri, og alls staðar var Eiríki fagnað með þakklæti og almennri alúð. En ekki var allt með fel'ldu. A meðan Eiríkur var að búa sig undir ferðina, birtu bæði innlend og útlend blöð bréf og greinar, sem drógu í efa sannleika yfirlýsinga þeirra, sem nefndin hafði gefið út. Ritstjóri Isafoldar, Eiríkur Briem, prentaði til dæmis tvö bréf frá nafna sínum Magnússyni og þýðingu á áskor- un Williams Morris til almennings í ísafold 8. september 1882, en 'bætti svo við grein eftir sjálfan sig. I henni segír hann, að þeir sem beðið höfðu Eirík um hjálp „hafa án éfa gjört meira úr þeim vandræðum, sem þar eiga sér stað, heldur en ástæða er til. Að til dæmis nokkurs staðar á Vesturlandi sé sú hungurs- nevð, að fólk muni eigi geta þolað venjulegan mat, er hreint eigi satt; og heldur eigi, að fjöldamörg tún í Strandasýslu og Húnavatnssýslu séu óljábær". Hann bendir á það, að Borgfirðingar og Dalamenn voru hættir því að biðja um hallærislán úr viðlagasjóði og að Coghill, frægum umboðsmanni Slimons (Leith and Iceland Shipping Companv), sé treystandi til, „að hann eins og í fyrra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.