Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1979, Síða 103

Andvari - 01.01.1979, Síða 103
andvari GAMANSEMI SNORRA STURLUSONAR 101 sögu helga í Heimskringlu, er birt var í Minjum og menntum, afmælisriti helguðu Kristjáni Eldjárn sextugum 1976. Ég héf þó sleppt nokkrum dæm- um úr Egils sögu i samantekt þeirri, er nú verður horfið að. Um gamansemi Snorra Sturlusonar í Eddu hans má segja líkt og um heilagan anda, að hún sé alls staðar nálæg. Yfir stílnum er einhver notalegur blær, yljaður af þeirri frásagnargleði, sem Snorra er svo eiginleg. Snorri lýsir vel tilgangi sínum með Eddu, að semja kennslubók í skáld- skap, þegar hann snemma í Skáldskaparmálum kemst svo að orði: „En þetta er nú at segja ungum skáldum, þeim er girnast at nema mál skáld- skapar ok heyja sér orðfjölda með fornum heitum eða girnast þeir at kunna skilja þat, er hulit er kveðit, þá skili hann þessa bók til fróðleiks og skemmtunar." Og hann heldur áfram og segir - og svarar þeim, er talið hafa verk hans afturhvarf til heiðinnar trúar: „En ekki er at gleyrna eða ósanna svá þessar frásagnir at taka ór skáldskapin- um fornar kenningar, þær er höfuðskáld hafa sér líka látit. En eigi skulu kristnir menn trúa á heiðin goð ok eigi á sannindi þessa sagna annan veg en svá sem hér finnst í upphafi bókar.“ Sigurður Nordal hefur lýst aðferð Snorra snilldarlega í bók sinni um hann, þar sem hann segir: „Formáli og umgerð Gylfaginningar eru eins og tvöfaldur skíðgarður, sem Snorri smíðar um heim goðanna. Þau slá varnagla um skoðanir Snorra sjálfs um þann veruleika, sem í goðatrúnni sé fólginn. Síðan getur goðalífið átt sér frjálsan leikvöll innan þessara vébanda, án þess að rekast á eða koma í bága við þær vísindaskoðanir eða trúarbrögð, sem utan þeirra eru. Nú má Hár segja það fortakslaust, að Freyr ráði fyrir regni og skini sólar og á hann sé gott að heita bl árs og friðar, þó að þetta sé hvorki í samræmi við trú né siðu íslendinga á 13. öld. Hitt hefði gert alla frásögnina sundurlausari og áhrifaminni, ef var- uagli hefði verið sleginn við hvert atriði: Því trúðu menn í heiðnum sið, að Freyr réði fyrir regni o. s. frv. Formálinn og umgerðin eru í einu gerð til þess að full- uægja kröfurn kirkjunnar, sagnfræðinnar og listarinnar. En þegar inn fyrir skíðgarðinn kom, að því, sem var sjálfur tilgangurinn: að skýra frá hinni fornu goðafræði, var næsta spurningin, hvernig ætti að skipa efninu/'1) Ef vér lítum á upphaf formálans, er engu líkara en prestur sé þar að he'fja prédikun sína: Almáttigr guð skapaði í upphafi himin ok jörð ok alla þá hluti, er þeim fylgja, °k síðast rnenn tvá, er ættir eru frá komnar, Adam ok Evu, ok fjölgaðist þeira kynslóð ok dreifðist um heim allan. J) Sigurður Nordal: Snorri Sturluson, 2. prentun, Reykjavík 1973, bls. 90.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.