Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 18
16
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
gerðu allt sem þau gátu til að bömin nytu þeirrar kennslu sem til boða
stóð. Voru böm þeirra því oft nánari kennurum sínum en önnur böm í
sveitinni. Lestrarfélag var í Ketildölum og var mikið sótt í bækur þess
af heimilinu. Þannig var menntunarþráin til staðar þó að efni væru lítil
til frekara náms. Jóni hafði verið komið í nám í vélsmíði á Þingeyri og
fékk að búa hjá frændfólki þar á meðan. Guðrúnu var komið í vist á
góðum heimilum. Þegar til ísafjarðar kom reyndi Valdimar að koma
Hannibal í nám í prentsmiðju bæjarins, en ekki gekk það eftir.2 Sigríði,
yngri systur Hannibals, bauðst að búa hjá Matthildi móðursystur sinni
á Akureyri, veturinn eftir fermingu og fékk hún inni í Gagnfræðaskól-
anum á Akureyri haustið 1918. Það sumar voru þeir bræður Hannibal
og Finnbogi Rútur á sjó sem kokkar. Hannibal fýsti að fara á Akureyr-
arskólann líkt og systirin, og sótti um skólavist með stuðningi foreldra
sinna. Fékk hann ekki inni, þar sem umsóknin barst of seint og skólinn
var fullsetinn. Ekki vildi Hannibal taka pláss Sigríðar, þótt hún byðist
til að láta honum það eftir, því honum þótti mikilvægara að hún nýtti
sér það tækifæri sem henni bauðst með fríu uppihaldi.3 Sat hann því
eftir heima þennan vetur. Árið 1919 var umsókn Hannibals endumýjuð
og hleypti hann þá heimdraganum og hélt til náms á Akureyri.
2. Skólaár á Akureyri og í Kaupmannahöfn
Haustið 1919 settist Hannibal í Gagnfræðaskólann á Akureyri, 16 ára
að aldri. Þar stundaði hann nám næstu þrjá vetur og útskrifast gagn-
fræðingur vorið 1922. Námið sóttist Hannibal vel, þótt undirbúningur
hans væri minni en margra skólasystkina hans. Islenska varð hans upp-
áhaldsfag. Ekki byrjaði það þó vel; þrír á miðsvetrarprófi og fall blasti
við ef ekki næðust fimm á vorprófinu. Það hafðist og fer ekki frekari
sögum af því að hann hafi staðið skólafélögum sínum að baki í nám-
inu. Hannibal rifjaði síðar upp að hann hefði frá bernsku:
... þjáðst af ægilegri feimni og uppburðarleysi. Gat ég nokkuð fram eftir
aldri varla stunið upp orði við ókunnugan mann, og hafði ég oft orðið mér til
sárrar minnkunar, og tekið út kvalræði, vegna þessa hvimleiða „kvilla“.4
Málfundafélag var starfandi við Gagnfræðaskólann og þar fengu
margir sína eldskím í framkomu og ræðumennsku.5 Unglingurinn að