Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 43
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
41
Segja má með sanni að Hannibal hafi ekki riðið feitum hesti þegar fjár-
hagsafkoma hans er skoðuð. Og nú var það ekki lengur hans einkamál,
því hann var orðinn fjölskyldumaður. Það er ekki fyrr en hann var
gerður skólastjóri Gagnfræðaskólans haustið 1938 að hagur hans virð-
ist nokkuð tryggur.
Fjölskyldan
Svo tók til máls ungur maður, sem ég hafði aldrei áður séð, en hafði fljótt
veitt sérstaka athygli, því að auk þess sem hann virtist mikið snyrtimenni, var
hann að öllu myndarlegur og þannig á svip og í fasi að auðsætt var, að hann
var enginn heimalningur og vissi það. Hann var fljúgandi mælskur og talaði
dönsku, sem hann bar fram þannig, að ætla hefði mátt, að hann væri józkur
menntamaður. Þetta var Hannibal Valdimarsson ...53
Þannig lýsir Guðmundur G. Hagalín fyrstu kynnum sínum af Hannibal
sumarið 1928 á fundi á ísafirði með norskum skólamönnum. Hannibal
vakti athygli hvar sem hann fór fyrir reisn og hvatlega framkomu. Það
var löngum sagt fyrir vestan að margt meyjarhjartað hafi slegið örar
þegar hann var nálægur. Hannibal var einhleypur fram undir þrítugt, en
þá kynntist hann Sólveigu Ólafsdóttur og eftir það tvinnuðust örlög
þeirra beggja.
Sólveig Sigríður Ólafsdóttir var fædd 24. febrúar 1904, dóttir Ólafs
Kristjáns Þórðarsonar bónda á Strandseljum í Ögursveit og konu hans
Guðríðar Hafliðadóttur. Ættir þeirra Hannibals og Sólveigar tengjast í
Eyrardalsætt. Sólveig fór á Héraðsskólann að Núpi í Dýrafirði og síðar
1 Kvennaskólann á Blönduósi. Að loknu námi gerðist hún farkennari á
heimaslóðum við Djúp, en hugur hennar mun hafa staðið til frekari
náms á því sviði, þó ekkert yrði þar úr.54 Sólveig fluttist til ísafjarðar,
þar sem hún vann fyrir sér að mestu með saumaskap.
Þegar Hannibal fluttist frá Súðavík til ísafjarðar 1931 bjó hann í
Hrannargötu 3 hjá Sigríði systur sinni og móður þeirra. Sólveig og
Hannibal taka þar upp sambúð, en þegar Alþýðuhúsið er fullbyggt,
Eytur fjölskyldan á efstu hæð þess sem innréttuð var til íbúðar. Þar
bjuggu þau næstu ár ásamt fleiri leigjendum. Árið 1939 fluttu þau aftur
1 Hrannargötuna, en þá voru Sigríður og Elín fluttar suður til Reykja-
víkur.
Hannibal og Sólveig eignuðust fimm böm á sex árum. Böm þeirra,
öll fædd á ísafirði, eru: Amór, fæddur 24. mars 1934, Ólafur Kristján,