Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 70
68
SIGURÐUR PÉTURSSON
ANDVARI
leggja saman fylgi flokkanna í einstökum kjördæmum, sem flest voru
enn einmenningskjördæmi, gátu flokkamir tveir gert sér vonir um að
ná meirihluta þingmanna, þótt ekki fengju þeir meirihluta kjósenda.
Nefndu þeir samstarf sitt „umbótabandalagið“, en vegna þess að
Alþýðuflokkurinn átti ekki öruggt þingsæti í neinu kjördæmi og gat
því hugsanlega dottið út af þingi, nefndu andstæðingamir þetta sam-
starf „hræðslubandalag“.
Hannibal hafði verið mikill stuðningsmaður hugmynda um samstarf
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks í kosningum og beitti sér fyrir mál-
inu meðan hann var enn innan flokksins.104 Þegar til kom var Hannibal
hinsvegar farinn úr flokknum og búinn að mynda annað bandalag með
sósíalistum. Hannibal og fylgismenn hans úr Alþýðuflokknum yfirgáfu
flokkinn og leituðu samstarfs við sósíalista, en Þjóðvamarflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn höfnuðu slíku samstarfi. Málfundafélag jafnaðar-
manna og Sósíalistaflokkurinn mynduðu kosningabandalag fyrir
alþingiskosningamar 1956 undir nafninu Alþýðubandalag.
Því hefur verið haldið fram, einkum af alþýðuflokksmönnum, að sú
atburðarás sem leiddi til þess að Hannibal yfirgaf Alþýðuflokkinn og
leiddi til stofnunar Alþýðubandalagsins hafi verið að undirlagi Finn-
boga Rúts bróður Hannibals. Rútur hafði verið þingmaður sósíalista
frá árinu 1949 án þess að vera flokksbundinn. Hann hafði ennfremur
látið til sín taka í bæjarmálum Kópavogs og stofnað þar til framboðs
gegn Alþýðuflokknum með góðum árangri. Þegar Alþýðublaðið undir
ritstjórn Hannibals tók afstöðu gegn lista Alþýðuflokksfélagsins, en
studdi framboð Finnboga Rúts er það sennilega einsdæmi að flokks-
málgagn styðji framboð gegn eigin flokki. Þetta var ein helsta ástæða
þess að ýmsir fyrrum samstarfsmenn Hannibals snerust gegn honum
sumarið 1954. Mikið hefur verið talað um leikfléttur Finnboga Rúts og
þjóðsagnablær yfir ýmsu sem um hann hefur verið skrifað. Sannast
sagna virðist hann ekki hafa séð fyrir atburðarás stjómmálanna fremur
en aðrir, en úrræðagóður var hann þegar á þurfti að halda. Enginn einn
maður hafði eins mikil áhrif á Hannibal Valdimarsson eftir að hann
flutti suður til Reykjavíkur árið 1952 og Finnbogi Rútur. Sumir sögðu
að hann væri „hinn illi andi Hannibals“, en áður hafði verið sagt að
hann væri hinn illi andi Jóns Blöndals. Eftir 1949 átti Finnbogi Rútur
ekki samleið með Alþýðuflokknum, heldur átti samstarf við sósíalista,
jafnt meðan Hannibal var formaður Alþýðuflokksins 1952-54. Með
stofnun Alþýðubandalagsins urðu þeir bræður aftur samherjar.