Andvari - 01.01.2003, Blaðsíða 59
andvari
HANNIBAL VALDIMARSSON
57
Alþingismaður Norður-ísafjarðarsýslu
Að fjórum árum liðnum var aftur komið að alþingiskosningum.
Spenna ríkti í Norðursýslunni þar sem Barði hafði flutt sig til Seyðis-
fjarðar, en nýr frambjóðandi var valinn fyrir Alþýðuflokkinn. Nú var
röðin komin að Hannibal Valdimarssyni, skólastjóra á Isafirði, að etja
kappi við Sigurð Bjamason þingmann Sjálfstæðisflokksins frá Vigun
Hannibal var jafnframt ritstjóri Skutuls og hafði verið mjög áberandi í
þjóðmálaumræðu næstu ár á undan. Kjördæmið náði yfir Bolungarvík,
Hnífsdal og Súðavík auk sveitanna við Djúp, Jökulfirði og Hom-
strandir. Frambjóðandinn var ekki óþekktur á þessum slóðum. Krat-
amir höfðu misst meirihlutann í bæjarstjóm ísafjarðar í ársbyrjun en
sóttu nú fram með nýjum krafti. í ísafjarðarkaupstað var Finnur Jóns-
son kosinn með yfirburðum, og í sýslunni náði Hannibal 488 atkvæð-
um, eða tæpum 40 prósentum. Þó að Sigurður Bjamason væri endur-
kosinn varð Hannibal annar uppbótarþingmaður Alþýðuflokksins. Þar
með hófst löng og litrík þingsaga Hannibals.
Alþingi kom saman í júlí 1946 og var það aukaþing. Þá þegar let
Hannibal til sín taka innan þingflokks Alþýðuflokksins, þannig að eftii
var tekið. Alþingi tók til afgreiðslu inngöngu Islands í Sameinuðu
þjóðimar. Hannibal lagði til í því sambandi að bandaríska herliðið sem
hér hafði verið frá árinu 1941 hyrfi af landi brott, svo ísland gæti
alfrjálst gerst aðili að hinum sameinuðu þjóðum.81 Þar með sló hinn
nýi þingmaður tóninn fyrir það slagverk sem átti eftir að heyrast.
Flokksagi og forysta flokksins stýrði honum ekki. Hann lét eigin sann-
færingu og hagsmuni umbjóðenda sinna ráða. Annar nýr þingmaður
hafði náð kjöri fyrir Alþýðuflokkinn í kosningunum 1946, Gylfi Þ.
Gíslason hagfræðingur. Báðir töldust þeir til vinstri arms flokksins sem
varð nokkuð áberandi á þessum tíma.
Alþýðuflokkurinn tók þátt í nýsköpunarstjórninni árið 1944 gegn
vilja formanns flokksins, Stefáns Jóhanns Stefánssonar, sem ekki vildi
t ríkisstjóm með Sósíalistaflokknum. í miðstjórn flokksins er sagt að
aðeins hafi munað einu atkvæði þegar kosið var um stjórnaraðildina.
Fað var atkvæði Finns Jónssonar sem réð úrslitum. Hann var staddur
vestur á ísafirði og sendi staðfest skeyti með afstöðu sinni. Ráðherrar
flokksins komu úr kratabæjunum Hafnarfirði og ísafirði, Emil Jónsson
°g Finnur Jónsson.
Innan Alþýðuflokksins hafði myndast róttækur armur sem var í and-